Körfubolti

„Kærastan fór að gráta og bróðir minn öskraði og æpti“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nikola Jokic.
Nikola Jokic. Getty/Justin Tafoya
NBA tilkynnti í gær hvaða fjórtán leikmenn bætast við byrjunarliðsmennina tíu í Stjörnuleik NBA-deildarinnar sem fer fram í Charlotte seinna í þessum mánuði.

Nikola Jokic er einn af fjórum nýliðum í Stjörnuleiknum í ár en miðherji Denver Nuggets hefur verið frábær á þessu tímabili.

Hinir nýliðarnir eru Ben Simmons hjá Philadelphia 76ers, Nikola Vucevic hjá Orlando Magic og Khris Middleton hjá Milwaukee Bucks.

Það munaði mjög litlu að Luka Doncic yrði kosinn inn í byrjunarliðið en þjálfararnir, sem kusu varamennina, völdu hann ekki. Rudy Gobert hjá Utah Jazz var líka nálægt byrjunarliðinu en fékk ekki náð fyrir augum þjálfaranna.

Rudy Gobert hefði fengið eina milljón í bónusgreiðslu, 120 milljónir, hefði hann verið valinn og þetta skipti hann því miklu máli peningalega.





„Kærastan fór á gráta og bróðir minn öskraði og æpti,“ sagði Nikola Jokic um ástandið heima hjá honum þegar hann fékk fréttirnar um að hann fengi að spila í Stjörnuleiknum í fyrsta sinn.

Nikola Jokic á þetta svo sannarlega skilið en hann er með 20,1 stig, 10,4 fráköst og 7,7 stoðsendingar að meðaltali í deildini í vetur auk þess að hitta úr 51 prósent skota sinna utan af velli og 85 prósent vítanna. Hann er að hækka sig bæði í stigum og stoðsendingum frá því í fyrra þegar hann var með 18,5 stig og 6,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. 

Denver Nuggets liðið er líka með annan besta árangurinn í Vesturdeildinni sem er mikil bæting frá því í fyrra þegar liðið endaði í 9. sæti og missti af úrslitakeppninni.





Varamennirnir sjö úr Vesturdeildinni eru: Russell Westbrook (áttunda skiptið), Klay Thompson (fimmta), Damian Lillard (fjórða), Anthony Davis (sjötta), LaMarcus Aldridge (sjöunda), Karl-Anthony Towns (annað skipti) og Nikola Jokic (nýliði). Byrjunarliðsmennirnir eru: LeBron James, Kevin Durant, Stephen Curry, James Harden og Paul George.





Varamennirnir sjö úr Austurdeildinni eru: Bradley Beal (annað skiptið), Victor Oladipo (annað), Kyle Lowry (fimmta), Blake Griffin (sjötta), Ben Simmons (nýliði), Khris Middleton (nýliði) og Nikola Vucevic (nýliði). Byrjunarliðsmennirnir eru: Giannis Antetokounmpo, Joel Embiid, Kemba Walker, Kyrie Irving og Kawhi Leonard.

LeBron James og Giannis Antetokounmpo fengu flest atkvæði og munu kjósa í lið sem síðan mætast í Stjörnuleiknum.  Kosning þeirra fer að þessu sinni fram í beinni sjónvarpsútsendingu en hún var í felum í fyrra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×