Lífið

Segir hjónabandsvandræði sín og Offset vera einkamál þeirra

Sylvía Hall skrifar
Hjónin hafa ekki farið leynt með erfiðleika í hjónabandinu.
Hjónin hafa ekki farið leynt með erfiðleika í hjónabandinu. Vísir/Getty
Rapparinn Cardi B tjáði sig um hjónaband sitt í viðtali við People nýverið. Cardi er gift rapparanum Offset sem er meðlimur Migos rappsveitarinnar en þau gengu í hjónaband árið 2017 og eiga dótturina Kulture saman. 

Cardi greindi frá því í desember síðastliðnum að þau væru hætt saman eftir að upp komst um framhjáhald Offset. Í kjölfarið reyndi rapparinn að vinna eiginkonu sína til baka, meðal annars með því að birta myndbönd á Instagram-síðu sinni og mæta óvænt á tónleika hennar með flennistórt rósaskilti sem á stóð: „Take me backCardi“ eða „Taktu mig aftur, Cardi.“ 

Þrátt fyrir að Cardi hafi ekki tekið vel í uppátæki eiginmannsins í upphafi segir hún að þau séu að vinna í sínum málum. Það sé hins vegar þeirra einkamál og komi engum öðrum við. Þau séu venjulegt par sem geri venjulega hluti.

„Við erum fræg, við erum mjög vinsæl akkúrat núna, ég skil ekki þráhyggjuna. Mér finnst eins og allt sem við gerum sé stórmál. Meira segja áður en erfiðleikarnir byrjuðu, síðan við sáumst fyrst saman, þá var þetta bara stórmál.“

Hún segir þau hittast reglulega og að þau séu í daglegum samskiptum. Það þýði þó ekki að hlutirnir séu fullkomnir og aðeins tíminn muni leiða í ljós hvernig fari.

„Þetta er hjónaband og það er barn í spilinu og fjölskyldur líka,“ segir Cardi í viðtalinu. 


Tengdar fréttir

Voru orðin hjón þegar þau trúlofuðu sig

Slúðurmiðillinn TMZ greindi fyrstur frá því að hjónin hefðu sótt um hjúskaparvottorð þann 20. september 2017, og höfðu þau þá þegar gengið í hnapphelduna.

Truflaði tónleika í von um að heilla fyrrverandi eiginkonu sína

Rapparinn Offset, þriðjungur rappþríeykisins Migos, vakti mikla athygli um helgina með óhefðbundnu uppátæki sínu þar sem hann ruddist inn á svið á tónleikum hjá fyrrverandi eiginkonu hans, Cardi B, og grátbað hana um að taka hann í sátt. Parið tilkynnti um skilnað sinn fyrr í þessum mánuði eftir ítrekað framhjáhald rapparans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×