Innlent

Þrjár tannlæknastofur hljóta dagsektir

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þann 29. janúar 2019 tók Neytendastofa ákvarðanir um að krefja þrjár tannlæknastofur um dagsektir fyrir að hafa enn og aftur ekki brugðist við með viðeigandi úrbótum líkt og lög og reglur kveða á um.
Þann 29. janúar 2019 tók Neytendastofa ákvarðanir um að krefja þrjár tannlæknastofur um dagsektir fyrir að hafa enn og aftur ekki brugðist við með viðeigandi úrbótum líkt og lög og reglur kveða á um. Vísir/Getty
Neytendastofa hefur ákveðið að leggja dagsektir á þrjár tannlæknastofur fyrir að hafa látið hjá líða að ráðast í úrbætur á upplýsingagjöf hvað varðar verðskrár á vefsíðum fyrirtækjanna þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar Neytendastofu.

Um er að ræða tannlæknastofurnar SP tannréttingar efh., Tannlæknastofan Turninn sf. og Tannlæknaþjónustuna slf. Tannlæknastofunum verður gert að greiða dagsektir að fjárhæð 20.000 króna á dag ef ekki verða gerðar viðeigandi úrbætur á vefsíðunum innan tveggja vikna.

Forsaga málsins er sú að í júlí 2018 gerði Neytendastofa könnun á vefsíðum allra tannlæknastofa á landinu í þeim tilgangi að kanna ástand verðmerkinga á vefsíðum fyrirtækjanna en skylt er að gefa upp verð þar sem þjónusta er kynnt og seld.

Í ljós kom að engin tannlæknastofa á landinu uppfyllti öll þau skilyrði sem lög og reglur kveða á um er varðar upplýsingagjöf um þjónustu. Neytendastofa fór í kjölfarið fram á kröfu um úrbætur af hálfu fyrirtækjanna.

Í árslok 2018 framkvæmdi Neytendastofa könnunina að nýju og þá kom í ljós að aðeins ein tannlæknastofa hefði gert viðunandi úrbætur í kjölfar ábendingar Neytendastofu. Stofnunin sendi bréf til 21 tannlæknastofu í desember þar sem aftur var farið fram á úrbætur.

Þann 29. janúar 2019 tók Neytendastofa ákvarðanir um að krefja þrjár tannlæknastofur um dagsektir fyrir að hafa enn og aftur ekki brugðist við með viðeigandi úrbótum líkt og lög og reglur kveða á um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×