Körfubolti

Sjáðu fimm ný heimsmet hjá Harlem Globetrotters

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá sýningu Harlem Globetrotters.
Frá sýningu Harlem Globetrotters. Getty/Daniel Munoz
Körfuboltaliðið Harlem Globetrotters er enn á fullri ferð og enn að setja óvenjuleg heimsmet.

Fimm ný heimsmet bættust í hópinn hjá liðinu á dögunum og eitt þeirra setti hin skemmtilega Torch George.

Magnaðasta heimsmetið var þó án efa ótrúlegt miðjuskot frá Bull Bullard.





Bull Bullard skaut þá aftur fyrir sig af tæplega 18 metra færi og um leið og hann fór í heljarstökk. Erfiðleikagráðan á þessu skoti er upp fyrir öll mörk.

Hin heimsmetin voru meðal annars flestar blindandi troðslur á mínútu, flestar troðslur hjá einu liði á mínútu eftir að hafa farið með boltann í gegnum klofið og flestar knattraksveltur hjá konu á mínútu.

Harlem Globetrotters liðið á nú 21 gildandi heimsmet hjá Heimsmetabók Guinness.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×