Fótbolti

Ísland í sama sæti og Son og félagar á nýjasta FIFA-listanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stuðningsmaður íslenska landsliðsins.
Stuðningsmaður íslenska landsliðsins. Getty/Sefa Karacan
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur niður um eitt sæti á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem var gefinn út í dag.

Íslenska landsliðið er nú í 38. sætinu og deilir því með landsliði Suður-Kóreu.

Ísland var síðast svona neðarlega á listanum í mars 2016 en fyrir ári síðan var íslenska landsliðið í átján sæti listans.  

Son Heung-min og félagar í Suður-Kóreu hækkuðu sig um fimmtán sæti eftir Asíukeppnina.

Nýkrýndir Asíumeistarar Katar hækkuðu sig um 38 sæti á listanum og eru komnir upp í 55. sæti en þeir hafa aldrei verið ofar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×