Innlent

Farþegabátur fór ítrekað út fyrir leyfilegt farsvið

Atli Ísleifsson skrifar
Landhelgisgæslan þurfti að kalla út séraðgerðasveit vegna ítrekaðra brota skipstjórans.
Landhelgisgæslan þurfti að kalla út séraðgerðasveit vegna ítrekaðra brota skipstjórans. Landhelgisgæslan
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar þurftu að hafa afskipti af farþegabáti um helgina, en hann hafði farið út fyrir leyfilegt farsvið sitt.

Í tilkynningu frá Gæslunni segir að skipstjórinn hafi verið áminntur og beðinn um að halda sig innan þeirra marka sem tilgreind eru reglugerð um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum. Degi síðar var sami bátur kominn út fyrir farsviðið á ný.

„Á mánudag endurtók skipstjóri þessa sama báts leikinn í þriðja sinn og fór út fyrir leyfilegt farsvið. Landhelgisgæslan kallaði út séraðgerðasveit sem tók á móti bátnum þegar hann kom til hafnar í Reykjavík og taldi farþega um borð. Skipstjórinn hafði tjáð Landhelgisgæslunni að 12 farþegar væru í bátnum en við talningu kom í ljós að þeir voru tæplega tvöfalt fleiri, eða 27 talsins, en máttu aðeins vera með 12. Skipstjórinn á yfir höfði sér kæru fyrir athæfið,“ segir í tilkynningunni.



Sérstakt eftirlit

Landhelgisgæslan ákvað í kjölfar atvikanna að senda eftirlitsmenn frá varðskipinu Þór til sérstaks eftirlits með farþegabátum í grennd við Reykjavík í dag. Við athugunina kom í ljós að einn farþegabátur hafi farið lítillega út fyrir leyfilegt farsvið og var skipstjórinn áminntur í kjölfarið.

„Í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar leggja menn metnað sinn í að vakta umferð báta og skipa í öryggisskyni. Því er afar mikilvægt að skipstjórnarmenn virði leyfilegt farsvið og standi rétt að skráningu farþega. Það skiptir viðbragðsaðila miklu máli að vita fjölda farþega um borð ef neyðarástand skapast,“ segir í tilkynningunni frá Gæslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×