Innlent

Bílastæðin fyrir framan verk Gerðar á Tollhúsinu fá að fjúka

Atli Ísleifsson skrifar
Mósaíkmyndin á Tollhúsinu við Tryggvagötu er líklegast þekktasta verk Gerðar Helgadóttur en það var afhjúpað í septembermánuði 1973.
Mósaíkmyndin á Tollhúsinu við Tryggvagötu er líklegast þekktasta verk Gerðar Helgadóttur en það var afhjúpað í septembermánuði 1973. Fréttablaðið/pjetur
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að ráðast í endurhönnun á Naustinni og hluta Tryggvagötu, frá Pósthússtræti að Grófinni. Breytingarnar fela meðal annars í sér að bílastæðin fyrir framan mósaíkverk listakonunnar Gerðar Helgadóttur á Tollhúsinu verði látin víkja.

Í bókun meirihlutans í nefndinni segir að fyrir framan verk Gerðar sé „sólríkt svæði sem [muni] nýtast til útiveru fyrir fólk í stað bíla.“ Mósaíkmyndin er líklegast þekktasta verk Gerðar en það var afhjúpað í septembermánuði 1973.

1.100 stæða bílakjallari

Fulltrúar meirihlutans – þau Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Pírati, Kristín Soffía Jónsdóttir og Hjálmar Sveinsson, bæði Samfylkingu og Gunnlaugur Bragi Björnsson, Viðreisn – segja það vera fagnaðarefni að áfram verði haldið með endurhönnun  Tryggvagötu.

„Endurhönnunin skapar betra borgarrými með breiðari gangstéttum og upphækkuðum gatnamótum. Norðan Tryggvagötu, við mósaíkverk Gerðar Helgadóttur, er sólríkt svæði sem mun nýtast til útiveru fyrir fólk í stað bíla. Því skal einnig haldið til haga að við hlið Tollhússins, undir Hafnartorgi, opnar innan skamms bílakjallari með 1.100 bílastæðum auk þess sem áfram verða bílastæði í götukanti sunnan Tryggvagötu. Bílastæðum í miðborginni er því áfram að fjölga en ekki fækka líkt og oft er haldið fram,“ segir í bókun fulltrúa meirihlutans í ráðinu.

Miðflokksmenn leggjast gegn breytingunum

Fulltrúi Miðflokksins, Baldur Borgþórsson, segir Miðflokkinn leggjast gegn fækkun bílastæða við Tollhúsið í Tryggvagötu við núverandi aðstæður.

„Um er að ræða þjónustu sem er mikið sótt af borgurum jafnt sem fyrirtækjum og mun útrýming bílastæða við húsið valda miklu ónæði fyrir viðskiptavini Tollstjóraembættisins. Fari svo að Tollstjóraembættið flytji annað, eða sambærilegur kostur hvað varðar aðgengi viðskiptavina er tilbúinn til notkunar er sjálfsagt að endurskoða málið,“ segir í bókun fulltrúa Miðflokksins.

Góð upplýsingagjöf

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu nefna í sinni bókun að áherslu skuli lögð á góða upplýsingagjöf og hvetja umhverfis- og skipulagssvið til að kynna sérstaklega þau bílastæðahús sem aðgengileg séu viðskiptavinum, starfsfólki og öðrum þeim sem sækja miðborgina heim. Undir þetta rita þau Hildur Björnsdóttir, Ólafur Kr. Guðmundsson og Valgerður Sigurðardóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×