Erlent

Þrýstingurinn eykst á vararíkisstjóra Virginíu eftir ásakanir um kynferðisbrot

Andri Eysteinsson skrifar
Justin Fairfax(v) ásamt ríkisstjóranum Ralph Northam á góðri stund. Í dag eru þeir báðir í erfiðri stöðu.
Justin Fairfax(v) ásamt ríkisstjóranum Ralph Northam á góðri stund. Í dag eru þeir báðir í erfiðri stöðu.
Mikill fjöldi demókrata hafa undanfarna daga kallað eftir afsögn vara-ríkisstjóra Virginíuríkis vegna ásakana um kynferðisbrot. Tvær konur, Vanessa Tyson og Meredith Watson, hafa stigið fram og lýst kynnum sínum af vara-ríkisstjóranum Justin Fairfax. BBC greinir frá.

Tyson steig fyrst fram og lýsti atburðum sem áttu sér stað á flokksþingi demókrata í Boston árið 2004. Tyson segir Fairfax hafa neytt hana til að veita sér munnmök á hótelherbergi sínu.

Watson segir sína sögu vera eins og sögu TysonWatson segist hafa þekkt Fairfax á námsárum þeirra í Duke-háskólanum en þau hafi aldrei átt í sambandi. Að sögn lögfræðings Watson hafa skólafélagar þeirra gefið skýrslu og lýst því þegar Watson kom grátandi til þeirra árið 2000 og sagði Fairfax hafa nauðgað sér.

Watson sækist ekki eftir bótum og segir það borgaralega skyldu sína að stíga fram, segist hún enn fremur vona að Fairfax segi af sér.

Segir herferðina gegn sér augljósa

Vara-ríkisstjórinn Justin Fairfax hefur svarað ásökununum og segir þær vera uppspuna. Fairfax segir að atburðurinn sem Vanessa Tyson talar um hafi verið „100% með hennar samþykki.“

Fairfax segir ekki ætla að segja af sér vegna málsins og segir að augljóslega sé um að ræða herferð gegn sér. Hefur hann óskað eftir því að málin verði rannsökuð að fullu til að hægt sé að hreinsa nafn hans.

Í yfirlýsingu minnti Fairfax fjölmiðla á að hann hafi gengið í gegnum tvær ítarlegar bakgrunnsskoðanir og háð tvær harðar kosningabaráttur og ekkert hafi komið upp. 

Konurnar tvær, Vanessa Tyson og Meredith Watson, hafa hlotið stuðning víða í demókrataflokknum, núverandi og fyrrverandi þingmenn, fyrrverandi ríkisstjóri Virginíu og forsetaframbjóðendur flokksins hafa hvatt Fairfax til að segja af sér.

Einnig hafa allir þingmenn demókrata frá Virginíu gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem Fairfax er hvattur til uppsagnar.

Ásakanirnar gegn Fairfax eru ekki eina hneykslismálið í stjórn Virginíu en ríkisstjórinn Ralph Northam og dómsmálaráðherrann Mark Herring hafa báðir verið sakaðir um kynþáttaníð vegna Blackface-hneykslisins.

Herring hefur gengist við því að hafa á háskólaárunum málað andlit sitt svart. Herring þykir eiga mesta möguleika á því að halda stöðu sinni en hann greindi sjálfviljugur frá gjörðum sínum. Enn kalla margir eftir afsögn Northam sem hyggst sitja áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×