Innlent

Vilja ná tali af manni sem varð vitni að samskiptum stúlku og konu

Birgir Olgeirsson skrifar
Tengist þetta rannsókn lögreglunnar á máli en lögreglan bætir því við í tilkynningu að stúlkan hafi verið með hund í taumi umrætt sinn.
Tengist þetta rannsókn lögreglunnar á máli en lögreglan bætir því við í tilkynningu að stúlkan hafi verið með hund í taumi umrætt sinn. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurlandi óskar þess að ná tali af karlmanni sem varð vitni að samskiptum stúlkubarns við konu á göngustíg eða gangstétt í nágrenni við Móhellu á Selfossi mánudagskvöldið 28. janúar síðastliðinn um klukkan 20:30. 

Tengist þetta rannsókn lögreglunnar á máli en lögreglan bætir því við í tilkynningu að stúlkan hafi verið með hund í taumi umrætt sinn. 

Maðurinn er talinn hafa verið á gangi þar skammt frá. Jafnframt óskar lögreglan þess að ná tali af umræddri konu vegna samskipta hennar við barnið.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um þessa tvo einstaklinga eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 444 2000, í tölvupósti sudurland@logreglan.is eða hér á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×