Erlent

Sjúkrahús að fyllast í „menguðustu borg Evrópu“

Samúel Karl Ólason skrifar
Ríkisstjórn Makedóníu segir mengunina að mestu vera til komna vegna þess hve margar fjölskyldur brenna við til að hita heimili sín.
Ríkisstjórn Makedóníu segir mengunina að mestu vera til komna vegna þess hve margar fjölskyldur brenna við til að hita heimili sín. Vísir/Getty
Sjúkrahús eru að fyllast og börn mæta ekki í skóla vegna gífurlegrar mengunar í borginni Skopje í Makedóníu, menguðustu borg Evrópu. Ríkisstjórn Makedóníu segir mengunina að mestu vera til komna vegna þess hve margar fjölskyldur brenna við til að hita heimili sín. Þá er borgin umkringd fjöllum sem valda því að mengunin hangir yfir borginni.

Aðrir segja þó borgina vera illa skipulagða og mikil fátækt valdi því að fólk neyðist til að brenna við til að hita heimili sín.

AFP fréttaveitan vísar í könnun frá UNDP þar sem þriðjungur íbúa borgarinnar sagðist brenna við á heimilum sínum. Þá sögðust margir stundum brenna plastúrgang og dekk. Þá veldur útblástur bíla og iðnaður, þar sem mikið er notast við kol, einnig mikilli mengun.



Mengunin hefur komið sérstaklega niður á börnum og öldruðum. AFP ræddi við eina konu sem þurfti að taka tveggja mánaða frí frá vinnu til að annast 16 mánaða barn sitt á sjúkrahúsi. Hún segir son sinn hafa fæðst heilbrigðan en hann sé nú kominn með mikinn astma.

Um hálf milljón manna búa í Skopje en þar eru minnst hundrað börn á sjúkrahúsum vegna öndunartengdra sjúkdóma. Það yngsta er tveggja mánaða gamalt.

Magn PM10 (eindir sem eru undir tíu míkrómetrum í þvermál) fór yfir 188 míkrógrömm í hverjum rúmmetra tvo daga í röð í síðustu viku. Það er nærri því fjórfalt hærra en heilbrigðisviðmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Svipaða sögu er að segja af PM2,5. Borgaryfirvöld lokuðu skólum í tvo daga, stöðvuðu stór byggingarverkefni og almenningssamgöngur voru ókeypis.



Nú hafa yfirvöld borgarinnar ákveðið að reyna að draga úr mengun um helming á næstu tveimur árum. Meðal þess sem stendur til að gera er að leggja gasleiðslur til heimila svo íbúar geti hætt að brenna við og rusl.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×