Enski boltinn

Hazard: Ég fer í taugarnar á öllum mínum þjálfurum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hazard í leik með Chelsea.
Hazard í leik með Chelsea. vísir/getty
Belgíski snillingurinn hjá Chelsea, Eden Hazard, segir það ekki vera neinar nýjar fréttir að hann fari í taugarnar á þjálfurunum sínum. Hann ætlar samt ekki að breyta sér.

Hazard segir að stjórar sínir hjá Chelsea - Jose Mourinho, Guus Hiddink, Antonio Conte og Maurizio Sarri - hafi allir kvartað yfir því hversu afslappaður hann sé á vellinum og hafi viljað meira frá honum.

„Ég fór ekki bara í taugarnar á Conte. Á ferlinum hafa þeir allir verið pirraðir út í mig. Ég fer núna í taugarnar á Sarri rétt eins og Mourinho var pirraður út í mig á sínum tíma,“ sagði Hazard.

„Þeim finnst öllum að ég þurfi að gera meira. Dekka betur og hitt og þetta. Næsti stjóri sem ég fæ mun líka verða pirraður út í mig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×