Körfubolti

Fólkið í MSG bæði baulaði á og klappaði fyrir Harden sem átti ótrúlegan leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
James Harden var með 61 stig í nótt.
James Harden var með 61 stig í nótt. Getty/Sarah Stier
James Harden skoraði 61 stig í nótt í sigri Houston Rockets á New York Knicks í sjálfum Madison Square Garden en fjöldi leikja fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.





James Harden hefur aldrei skorað meira í leik á ferlinum en í nótt og 61 stig frá honum hjálpaði Houston Rockets að vinna nauman 114-110 sigur á heimamönnum í New York Knicks.

Þetta var líka metjöfnun í núverandi Madison Square Garden en útileikmaður hefur aldrei skorað meira í leik í NBA í höllinni. Harden jafnaði þar met Kobe Bryant. Carmelo Anthony á enn stigametið í nýja Madison Square Garden en hann skorðai 62 stig sem leikmaður New York Knicks

Þetta er 21. leikurinn í röð þar sem Harden skorar þrjátíu stig eða meira en hann tvöfaldaði það og náði yfir 50 stigin í fimmta sinn á leiktíðinni.





„Eins og við spiluðum síðustu sex mínúturnar þá sendum við körfuboltann aftur um tíu ár. Það var óskiljanlegt hvað við vorum að gera en við náðum að landa sigrinum,“ sagði Mike D'Antoni, þjálfari Houston Rockets, eftir leik.

Harden hitti úr 17 af 38 skotum sínum utan af velli en aðeins 5 af 20 þriggja stiga skot hans fóru rétta leið. Hann hitti aftur á móti úr 22 af 25 vítum og tók alls fimmtán fráköst í leiknum.

Áhorfendur í New York skiptust á að baula og klappa fyrir honum í leiknum. „Þau gátu ekki ákveðið sig. Ég kann að meta þau samt. Áhorfendurnir héldu mér gangandi og gerðu þennan leik mjög spennandi fyrir mig,“ sagði Harden.

Victor Oladipo meiddist illa á hægra hné í öðrum leikhluta en lið hans Indiana Pacers náði að vinna 110-106 á Toronto Raptors. Thaddeus Young var með 23 stig og 15 fráköst fyrir Indiana liðið sem vann sinn þriðja leik í röð. Tímabilið mun breytast snögglega missi liðið Oladipo. Serge Ibaka var atkvæðamestur hjá Toronto með 23 stig og 11 fráköst og Kyle Lowry skoraði 20 stig.





Terry Rozier skoraði 22 af 26 stigum sínum í fyrri hálfleik í fjarveru Kyrie Irving (veikur) þegar Boston Celtics vann 123-103 sigur á Cleveland Cavaliers en þetta var fimmti sigurleikur Boston í röð. Jaylen Brown var með 23 stig, Gordon Hayward skoraði 18 stig og Jayson Tatum var með 15 stig í tíunda heimasigri Celtics liðsins í röð.





Blake Griffin var með 20 af 37 stigum sínum í fyrsta leikhlutanum þegar Detroit Pistons vann 98-94 sigur á New Orleans Pelicans. Jrue Holiday skoraði mest fyrir Pelíkanana eða 29 stig.









Joel Embiid skoraði 33 stig og tók 19 fráköst þegar Philadelphia 76ers vann San Antonio Spurs 122-120 í hörkuleik. Ben Simmons var með þrennu en hann skoraði 21 sitg, tók 10 fráköst og gaf 15 stoðsendingar. DeMar DeRozan skoraði mest fyrir Spurs eða 26 stig.





D'Angelo Russell var með 25 stig og 10 fráköst og Spencer Dinwiddie skoraði 29 stig þegar Brooklyn Nets vann sinn fimmta leik í röð nú 114-110 sigur á Orlando Magic.





Donovan Mitchell skoraði 35 stig og setti niður sex þriggja stiga körfur í 114-108 sigri Utah Jazz á Denver Nuggets. Ricky Rubio var með 17 stig og Rudy Gobert bætti við 15 stigum og 11 fráköst. Þetta var níundi sigur Utah í ellefu leikjum. Nikola Jokic var með 28 stig, 21 fráköst og 6 stoðsendingar fyrir Denver liðið.









Úrslitin úr öllum leikjum NBA-deildarinnar í nótt:

Utah Jazz - Denver Nuggets    114-108    

Chicago Bulls - Atlanta Hawks    101-121    

Memphis Grizzlies - Charlotte Hornets    107-118    

New Orleans Pelicans - Detroit Pistons    94-98    

Philadelphia 76ers - San Antonio Spurs    122-120    

Boston Celtics - Cleveland Cavaliers    123-103    

Brooklyn Nets - Orlando Magic    114-110    

Miami Heat - Los Angeles Clippers    99-111    

New York Knicks - Houston Rockets    110-114    

Indiana Pacers - Toronto Raptors    110-106   











NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×