Körfubolti

Gríska fríkið leiddi magnaða endurkomu Bucks

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hart barist
Hart barist vísir/getty
Milwaukee Bucks styrkti stöðu sína á toppi Austurdeildarinnar í NBA körfuboltanum í nótt þegar liðið vann endurkomusigur á Charlotte Hornets.

Bucks voru 13 stigum undir snemma í fjórða leikhluta en þá tóku Giannis Antetokounmpo og félagar öll völd á vellinum og unnu fjórða leikhlutann 32-12. Lokatölur því 108-99, Bucks í vil. Grikkinn öflugi var atkvæðamestur að vanda; gerði 34 stig auk þess að taka 14 fráköst.

Á sama tíma töpuðu þeirra helstu keppinautar í Austrinu þar sem Toronto Raptors tapaði fyrir Houston Rockets í hörkuleik, 121-119.

James Harden fór fyrir Rockets liðinu með 35 stig en Kawhi Leonard var stigahæstur hjá Raptors með 32 stig.

Denver Nuggets heldur áfram að þjarma að ríkjandi meisturum Golden State Warriors í Vesturdeildinni en Nuggets vann öruggan sigur á Phoenix Suns í nótt, 132-95, þar sem átta leikmenn skoruðu tíu stig eða meira en Paul Millsap var stigahæstur með 20 stig.

Úrslit næturinnar


Orlando Magic 91-95 Washington Wizards

Brooklyn Nets 109-99 New York Knicks

Cleveland Cavaliers 94-100 Miami Heat

Chicago Bulls 101-106 Los Angeles Clippers

Houston Rockets 121-119 Toronto Raptors

Memphis Grizzlies 96-99 Sacramento Kings

Dallas Mavericks 106-101 Detroit Pistons

Milwaukee Bucks 108-99 Charlotte Hornets

Denver Nuggets 132-95 Phoenix Suns

Utah Jazz 106-102 Minnesota Timberwolves

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×