Körfubolti

Góður leikur Martins dugði ekki til

Anton Ingi Leifsson skrifar
Martin í baráttunni í leik með Alba.
Martin í baráttunni í leik með Alba. vísir/getty
Martin Hermannsson átti enn einn góða leikinn í þýsku úrvalsdeildinni er Alba Berlín tapaði með sex stiga mun, 91-85, fyrir Göttingen á útivelli.

Heimamenn í Göttingen byrjuðu af miklum krafti og leiddu eftir fyrsta leikhlutann 27-16. Þeir leiddu svo í hálfleik með x stigum, 50-44.

Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik en Göttingen var ávallt skrefi á undan. Þeir höfðu svo að endingu betur og tryggðu sér mikilvæg tvö stig.

Martin átti flottan leik fyrir Alba en hann skoraði nítján stig og var næst stiga hæsti leikmaður Alba. Martin gaf þar að auki átta stoðsendingar og tók tvö fráköst.

Alba er í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig en Göttingen er í ellefta sætinu eftir sigur dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×