Handbolti

Sterkur sigur hjá Brasilíu gegn Serbíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brassarnir sækja að marki Serba í dag.
Brassarnir sækja að marki Serba í dag. vísir/getty
Brasilía kom skemmtilega á óvart á HM í dag er Brassarnir skelltu Serbum með tveggja marka mun.

Jose Toledo atkvæðamestur í liði Brassanna með fimm mörk en margir lögðu hönd á plóg og markaskorun dreifðist vel. Bogdan Radivojevic og Mijajlo Marsenic skoruðu báðir fimm mörk fyrir Serba.

Brasilíu er í fjórða sæti A-riðils en Serbía því fimmta.

Ungverjar eru á toppi D-riðils eftir sigur á Katar og Túnis kom sér upp í fjórða sæti C-riðils með sigri á Síle.

Úrslit:

Túnis-Síle  36-30

Serbía-Brasilía  22-24

Ungverjaland-Katar  32-26






Fleiri fréttir

Sjá meira


×