Handbolti

Sérfræðingurinn: Gríðarlega auðvelt en klárað með sóma

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það var glatt á hjalla er fyrstu stigin duttu í hús í dag
Það var glatt á hjalla er fyrstu stigin duttu í hús í dag vísir/getty
Gunnar Berg Viktorsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, var ánægður með frammistöðu ungu leikmanna Íslands í auðveldum átján marka sigri á Barein í dag á HM 2019 í handbolta.

„Þetta var gríðarlega auðvelt og auðveldara en ég hélt. Við vorum mjög beittir sóknarlega og þeir áttu engin svör við því,“ sagði Gunnar er hann gerði leikinn stuttarlega upp.

„Við erum bara miklu betra lið, maður sá það bersýnilega.“

Andstæðingurinn í dag var vissulega ekki sá sterkasti, lið Barein hefur tapað öllum þremur leikjum sínum til þessa og er með 33 mörk í mínus eftir þá.

Gunnar vildi þó ekki taka neitt frá frammistöðu liðsins.

Framtíðin er björt
Ýmir Örn Gíslason sækir að marki Bareinvísir/epa
„Mér fannst strákarnir bara gríðarlega flottir. Frábært fyrir Björgvin að fá góðan leik, svo kom Daníel inn í vörnina og átti flottan leik. Gott fyrir næstu leiki að menn séu að finna taktinn.“

„Arnór hitti úr öllum skotunum sínum og þeir sýndu bara gríðarlega góðan leik allir saman. Það var enginn undir væntingum og það hjálpar okkur.“

„Þessi leikur var auðveldur en menn kláruðu leikinn með sóma.“

Ungu leikmennirnir í liðinu fengu margar mínútur í dag, þeir gerðu það svo sem líka margir á móti Spáni og Króatíu, en síðasta korterið í leiknum var meirihluti leikmannanna fæddur rétt hinu megin við aldamótin.

„Elvar er greinilega kominn á hörku ról á hans ferli og heldur því áfram. Teitur kom inn á og er flottur, líka Gísli. Mér fannst hann kannski vera aðeins of nálægt stundum í kontakt, en annars voru þeir bara flottir.“

„Framtíðin er björt fyrir okkur með þessa stráka,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson.


Tengdar fréttir

Aron: Komu nánast slefandi út af

Aron Kristjánsson segir að hans menn í Barein hafi orðið virkilega þreyttir í átján marka tapi gegn Íslandi á HM í handbolta í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×