Handbolti

Sigvaldi: Draumur fyrir mig

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigvaldi skorar í leiknum gegn Spáni í gær.
Sigvaldi skorar í leiknum gegn Spáni í gær. vísir/getty
Sigvaldi Guðjónsson, hægri hornamður, átti fína innkomu í stórsigrinum á Barein. Sigvaldi skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í átján marka sigrinum í Þýskalandi í dag.

„Það er mjög gaman að vera með á þessu stórmóti og njóta þess,“ sagði Sigvaldi í samtali við Tómas Þór Þórðarson í München.

„Við vorum sammála um að keyra á fullu á þá allan leikinn en þeir reyndu að komast inn í hausinn á okkur undir lok fyrri hálfeiks.“

„Við fórum inn í klefa og svo keyrðum við bara yfir þá,“ en Sigvaldi segir að það sé draumur að rætast hjá honum að spila fyrir Ísland á stórmóti.

„Það er gaman að því. Það er bara draumur fyrir mig að spila á svona stórmóti.“

Sigvaldi segir að þeir þurfi að vera klárir í tvo næstu leiki gegn Japan og Makedóníu en það eru algjörir úrslitaleikir fyrir íslenska liðið hvað framhaldið varðar.

„100%. Þetta eru allt úrslitaleikir fyrir okkur og við þurfum að vera hundrað prósent klárir í alla leiki. Við ætlum að gera það,“ sagði Sigvaldi.

Klippa: Sigvaldi: Þetta er draumur fyrir mig



Tengdar fréttir

Teitur: Ég vildi sýna mig

Teitur Örn Einarsson minnti á sig í leiknum gegn Barein með rosalegum neglum sem markverðir Barein gátu ekki annað en dáðst af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×