Körfubolti

Stórt tap hjá Jakobi og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Vísir/Anton
Jakob Örn Sigurðarson snéri aftur í lið Borås í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Södertälje Kings í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Jakob skoraði þrjú stig á fimmtán mínútum í leiknum sem Borås tapaði 93-75.

Gestirnir í Borås höfðu verið yfir eftir fyrsta fjóðunginn 18-24 en tapaði öðrum fjórðungi illa og staðan var 48-40 þegar flautað var til hálfleiks.

Kings voru með yfirhöndina allan seinni hálfleikinn og fóru að lokum með þægilegan sigur.

Borås er í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig, Södertälje er í öðru með 36 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×