Það sem United liðið hefur bætt mest eftir að Solskjær tók við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2019 09:00 Ole Gunnar Solskjær. Getty/Marc Atkins
Manchester United hefur á örfáum vikum farið úr því að vera óspennandi lið á niðurleið í að vera heitasta liðið í ensku úrvalsdeildinni. Knattspyrnusérfræðingar keppast við að greina þessa breytingu og hvernig Norðmanninum Ole Gunnar Solskjær tókst að breyta svo mörgu svona fljótt. En hvað hefur breyst mest? Hver er aðalástæðan fyrir því að United liðið fer úr því að fá sex stig í síðustu fimm deildarleikjunum undir stjórn Jose Mourino í að fá fimmtán stig og skora fimmtán mörk í fimm fyrstu deildarleikjum undir stjórn Ole Gunnar Solskjær. Blaðamann Telegraph hafa greint Manchester United liðið og reynt að komast að því hvað hefur gerst hjá liðinu.Direct passing and attacking at pace The No 10 role • A consistent back four Five areas where Manchester United have improved post-Jose Mourinho #MUFChttps://t.co/MNCxofYEWupic.twitter.com/rWtyA6iyxt — Telegraph Football (@TeleFootball) January 15, 2019 Nýr knattspyrnustjóri fær alltaf einvher viðbrögð frá sínu liði þar sem allir leikmenn liðsins fá þá hreint blað og nýtt tækifæri til að komast í betra hlutverk í liðinu. Breytingin á United-liðinu snýst hinsvegar um miklu meira en það. Það voru og eru miklir hæfileikar í liðinu enda kostuðu flestir leikmennirnir mikinn pening og komu til United eftir að hafa sannað sig annarsstaðar. Þeir voru því ekki eins lélegir í fótbolta og eins og leit út undir það síðasta í stjóratíð Jose Mourinho. Leikgleðin var hinsvegar engin og menn kepptust frekar um að vera í fýlu en að reyna að vinna leikina. En hverjar eru lykilbreytingarnar á United liðinu að mati blaðamanna Telegraph. Ein af þeim allra stærstu snýst um tempó eða hraða í leik Manchester United liðsins. Það tengist síðan ennfremur óttaleysi við að spila aftur frjálsan fótbolta og láta boltann ganga hratt upp völlinn. Solskjær hefur líka lagt ofurkapp á að minna sína menn á að þeir eigi að þakka fyrir það og taka ávallt brosandi á móti því tækifæri að fá að spila fyrir klúbb eins og Manchester United. Norðmaðurinn hefur lofsungið félagið og um leið reynt að kalla fram þá spilamennsku sem félagið er þekkt fyrir. Solskjær er heldur ekki á fleygiferð með öftustu varnarlínu liðsins og þar hefur komið stöðugleiki. Varnarleikurinn hefur unnið hvað mest á í undanförnum leikjum eftir að liðið hafði alltaf fengið á sig mark í fyrstu leikjum Solskjær. Phil Jones og Victor Lindelöf eru saman í miðverðinum og þeir Luke Shaw og Ashley Young skila bakvarðarstöðunum. Þetta hefur verið varnarlína United í næstum því öllum deildarleikjunum síðan að Solskjær tók við. Fyrr í vetur var nánast hægt að ganga að því vísu að Jose Mourinho væri búinn að gera breytingu á varnarlínunni á milli leikja.24 hours ago #MUFC : @MUFCaways_pic.twitter.com/wwmaL6JpfN — Manchester United (@ManUtd) January 14, 2019Flestir leikmanna Manchester United eru að spila betur en það eru einkum tveir sem hafa slegið algjörlega í gegn og þeir hafa báðir gert mikinn usla í vörnum mótherja United í undanförnum leikja. Paul Pogba og frábær framistaða hans er auðvitað annað lykilatriði sem og að veðja á Marcus Rashford sem framherja en ekki sem kantmann. Paul Pogba hefur skinið skært í frjálsara hlutverki fremst á miðjunni en mestu skiptir þó að hann fær að spila og þarf ekki að glíma við einhvera sálfræðileiki hjá knattspyrnustjórnaum sínum. Marcus Rashford hefur blómstrað sem fremsti maður. Hann skoraði 3 mörk í fyrstu 14 deildarleikjum sínum á leiktíðinni en þá var hann oftast út á kanti. Solskjær las hann rétt, setti hann upp á topp og Marcus Rashford hefur svarað með 4 mörkum í 5 deildarleikjum. Ole Gunnaar Ssolkjær hefur staðið öll próf hingað til og næsta próf er um helgina á móti Brighton en síðan taka við deildarleikir við Burnley, Leicester City og Fulham áður en kemur að Liverpool leiknum. Það er ekkert ólíklegt að þegar Liverpool mæti á Old Trafford þá verði Manchester United búið að vinna níu deildarleiki í röð.You know it's been a successful day when Ole's fist pump comes out! Thank you for your support as always, Reds pic.twitter.com/EQVYICaNX6 — Manchester United (@ManUtd) January 13, 2019
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu markið sem færði Man United og Ole Gunnar sjötta sigurinn í röð Gylfi Þór Sigurðsson og félegar unnu nauðsynlegan sigur og Marcus Rashford var hetja Manchester United í sunnudagsleikjum ensku úrvalsdeildarinnar. 14. janúar 2019 08:00 Solskjær áhrifin: Bara tveir leikmenn Manchester United eru ekki að spila betur síðan að hann tók við Átta af tíu leikmönnum Manchester United hafa bætt sinn leik eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við sem knattspyrnustjóri liðsins. 15. janúar 2019 09:00 Messan: „Sumir hafa verið að líta til Solskjær og nánast gera grín að honum“ Messan fór yfir stórleik helgarinnar í gær og þar var Ole Gunnar Solskjær að sjálfsögðu ræddur. 14. janúar 2019 07:00 Ole Gunnar stóðst stóra prófið Manchester United var komið í algjört þrot undir stjórn Portúgalans José Mourinho. 14. janúar 2019 15:30 De Gea tilbúinn að vera áfram hjá United en vill veglega launahækkun David de Gea, spænski markvörður Manchester United, er tilbúinn að ræða nýjan samning við Manchester United en vill fá góða launahækkun í nýja samningnum. 15. janúar 2019 14:00 Mest lesið „Gerist ekki grátlegra“ Handbolti „Tapaður bolti og Basile setur þrist“ Körfubolti Rígur framtíðar eða valdaskipti: „Við munum snúa aftur“ Fótbolti Uppgjör: Grindavík-Valur 80-78 | Oddaleikur niðurstaðan þökk sé ótrúlegasta endi síðari ára Körfubolti „Finnst þetta geðveikur sigur“ Handbolti Ætlar að skjóta Timberwolves inn í seríuna Körfubolti „Ég elska að við töpum ekki hér“ Körfubolti „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Handbolti Grayson Murray látinn aðeins þrjátíu ára Golf Uppgjörið: FH-Afturelding 27-26 | FH-ingar tóku forystuna með síðasta skoti leiksins Handbolti Fleiri fréttir Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Paquetá ákærður fyrir að sækjast eftir spjaldi í eigin leikjum Lopetegui tekur við West Ham Yfirmenn Pep fullvissir um að félagið verði ekki sakfellt Talið að Man Utd láti Ten Hag fara eftir úrslitaleikinn Féll í vor en vonast eftir Chelsea eða Bayern Ummælin höfðu neikvæð áhrif á Nunez sem hugsar hlýlega til Spánar Liverpool auglýsir lausa stöðu í þjálfarateymi Arne Slot Börn Bruno Fernandes kvöddu Jóhann: „Hann er toppmaður“ Ekki á heimleið: „Á inni nokkur ár á háu stigi“ Pochettino farinn frá Chelsea Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Rashford líka skilinn eftir heima Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Sjá meira
Sjáðu markið sem færði Man United og Ole Gunnar sjötta sigurinn í röð Gylfi Þór Sigurðsson og félegar unnu nauðsynlegan sigur og Marcus Rashford var hetja Manchester United í sunnudagsleikjum ensku úrvalsdeildarinnar. 14. janúar 2019 08:00
Solskjær áhrifin: Bara tveir leikmenn Manchester United eru ekki að spila betur síðan að hann tók við Átta af tíu leikmönnum Manchester United hafa bætt sinn leik eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við sem knattspyrnustjóri liðsins. 15. janúar 2019 09:00
Messan: „Sumir hafa verið að líta til Solskjær og nánast gera grín að honum“ Messan fór yfir stórleik helgarinnar í gær og þar var Ole Gunnar Solskjær að sjálfsögðu ræddur. 14. janúar 2019 07:00
Ole Gunnar stóðst stóra prófið Manchester United var komið í algjört þrot undir stjórn Portúgalans José Mourinho. 14. janúar 2019 15:30
De Gea tilbúinn að vera áfram hjá United en vill veglega launahækkun David de Gea, spænski markvörður Manchester United, er tilbúinn að ræða nýjan samning við Manchester United en vill fá góða launahækkun í nýja samningnum. 15. janúar 2019 14:00
Uppgjör: Grindavík-Valur 80-78 | Oddaleikur niðurstaðan þökk sé ótrúlegasta endi síðari ára Körfubolti
Uppgjör: Grindavík-Valur 80-78 | Oddaleikur niðurstaðan þökk sé ótrúlegasta endi síðari ára Körfubolti