Handbolti

Bað konunnar í Ólympíuhöllinni í München

Tómas Þór Þórðarson í München skrifar
Viktor á skeljunum í Ólympíuhöllinni í dag.
Viktor á skeljunum í Ólympíuhöllinni í dag. vísir/tom
Viktor Lekve, stuðningsmaður íslenska landsliðsins í handbolta og uppeldisbróðir Bjarka Más Elíssonar, landsliðsmanns, bað konunnar sinnar í Ólympíuhöllinni í München fyrir leik Íslands og Japan.

Viktor fór með konu sinni, Heiðrúnu Evu, og þriggja ára gamalli dóttur þeirra, Ylfu Dís, á pallinn þar sem að hallarkynnirinn er staðsettur og fékk hjá honum hljóðnemann.

„Heiðrún, ég elska þig. Ég get ekki ímyndað mér að gera þetta á betri stað. Viltu giftast mér,“ sagði Viktor og fór á skeljarnar með góðum árangri því Heiðrún grét af gleði og sagði já.

Viktor kyssti svo sína heittelskuðu er hann kom hring fyrir á hönd hennar og faðmaðist svo fallega fjölskyldan en allt sást þetta á risaskjánum í Ólympíuhöllinni.

Svo sannarlega falleg stund og gefur vonandi góð fyrirheit fyrir framhaldið hjá strákunum okkar.

Hringurinn settur á.vísir/tom
Allt var þetta á risaskjánum.vísir/tom

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×