Viðskipti erlent

Óttast að hakkarar geti reimað fólk fast í nýjum sjálfreimandi skóm Nike

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Snjallskórnir kosta 350 dollara, um 40 þúsund krónur.
Snjallskórnir kosta 350 dollara, um 40 þúsund krónur. Mynd/Nike
Öryggis- og tækniblaðamaður tæknivefmiðilsins CNET prófaði á dögunum nýja sjálfreimandi skó skóframleiðandans Nike. Skórnir tengjast síma þráðlaust og þrátt fyrir að skórnir séu að sögn blaðamannsins nokkuð þægilegir hefur hann áhyggjur af því að hakkarar geti brotist inn í skóna, reimað þann sem er í þeim fastan og neitað að losa um reimarnar nema lausnargjald sé greitt.

Adapt BB-skórnir voru kynntir af Nike á dögunum og þykja mikil tæknibylting fyrir þá sem eru orðnir leiðir á því að reima skó sína í tíma og ótíma. Skórnir eru útbúnir búnaði sem tengist forriti í síma viðkomandi í gegnum Bluetooth. Þannig er hægt að stilla fullkomnlega hversu fast reima á skóna hverju sinni. Skórnir safna einnig gögnum um notendann og því mögulega hentugir fyrir þá sem stunda mikið af æfingum.

Athygli vekur að hlaða þarf skóna en hver hleðsla dugar í um tvær vikur. Sérstök hleðslumotta fylgir með skónum. Blaðamaðurinn Alfred Ng prófaði skóna á dögunum og var nokkuð hrifinn af þeim, en sagðist þó frekar vera til í að þurfa reima skó sína endrum og sinnum, í stað þess að þurfa að hlaða skóna til þess að vera ganga í þeim.

Þá hefur hann áhyggjur að hægt sé að fylgjast með þeim sem gangi um í skónum.

„Ég þarf einnig að minnast á það að sem öryggisblaðamaður hef ég áhyggjur af persónuvernd og möguleikanum á því að hakkarar geti læst mig í skónum og neitað að losa mig nema ég greiði lausnargjald,“ skrifar Ng.

Segir hann þó að grunnhugmyndin sé góð og þegar skór með þessari tækni búi yfir betri rafhlöðuendingu og verði á viðráðanlegra verði, muni skóáhugamenn fagna þessari nýjung.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×