Körfubolti

Leonard fór á kostum í fjórða heimasigri Raptors í röð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leonard fór á kostum í nótt
Leonard fór á kostum í nótt vísir/getty
Kawhi Leonard átti einn sinn besta leik á ferlinum þegar hann skoraði 45 stig í sigri Toronto Raptors á Utah Jazz í bandarísku NBA deildinni í körfubolta í nótt.

Pascal Siakam bætti við 28 stigum og 10 fráköstum, sem er hans besta á ferlinum, í 122-116 sigri Toronto á heimavelli.

Leonard skoraði stigin 45 án þess að hitta eitt einasta þriggja stiga skot, hann reyndi þau aðeins þrjú. Hann skoraði úr 16 af 22 tveggja stiga tilraunum og setti 13 vítaskot.

Þetta var fjórði heimasigur Raptors í röð í deildinni en liðið er í öðru sæti Austurdeildarinnar.



Í Milwaukee unnu heimamenn í Bucks sinn fjórða sigur í röð þegar Detroit Pistons mættu í heimsókn. Bucks er með 26 sigra og 10 töp á tímabilinu, það besta í NBA deildinni, og situr á toppi Austurdeildarinnar.

Giannis Antetokounmpo átti frábæra einnar handar troðslu og Brook Lopez var með skotsýningu í þægilegum 121-98 sigri Milwaukee.



Úrslit næturinnar:

Toronto Raptors - Utah Jazz 122-116

Milwaukee Bucks - Detroit Pistons 121-98

Denver Nuggets - New York Knicks 115-108

Sacramento Kings - Portland Trail Blazers 108-113

LA Clippers - Philadelphia 76ers 113-119

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×