Körfubolti

LeBron James farinn að skjóta á ný

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
LeBron James hefur spilað vel með Lakers í vetur
LeBron James hefur spilað vel með Lakers í vetur vísir/getty
LeBron James er farinn að skjóta körfubolta á ný eftir að hafa meiðst á jóladag. Hann mun þó missa af fjórða leiknum í röð með LA Lakers í nótt.

James, sem kom til Lakers fyrir tímabilið, gat loksins skotið boltanum á æfingu í gær. Hann meiddist í leik við meistarana í Golden State Warriors 25. desember.

Los Angeles tapaði tveimur en vann einn af þremur leikjum sínum síðan James meiddist. Liðið mætir Oklahoma City Thunder í nótt.

„Þetta er erfitt án hans, því hann lætur í sér heyra,“ sagði Lance Stephenson, liðsfélagi James.

„Þegar hann er ekki með eru allir hljóðir og maður veit ekki hvað er á gangi inni á vellinum.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×