Erlent

Segir ekki hægt að bola sér úr embætti vegna vinsælda innan Repúblikanaflokksins

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Evan Vucci
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að allt tal Demókrata um að þvinga hann úr embætti sé vegna þess að þeir viti að þeir geti ekki sigrað hann í forsetakosningunum á næsta ári. Það sé vegna þess að hann sé svo vinsæll og hafi gengið svo vel í starfi. Þá reyndi hann að kenna Demókrötum um óstöðugleika á verðbréfamörkuðum ytra.

Í tveimur tístum í dag velti Trump einnig vöngum yfir því hvernig hægt væri að þvinga hann úr embætti.

„Hvernig þvingar þú forseta úr embætti sem vann mögulega stærsta kosningasigur sögunnar, hefur ekkert rangt gert (Ekkert samstarf með Rússum, það voru Demókratar), var með best heppnuðu tvö fyrstu ár allra forseta og er vinsælasti Repúblikaninn í sögu flokksin?“ skrifaði Trump.

Vert er að benda á að Trump vann svo sannarlega ekki stærsta kosningasigur sögunnar. Hann fékk um þremur milljónum færri atkvæði en mótframbjóðandi hans Hillary Clinton en tryggði sér þó 304 kjörfulltrúa. Hann hefur áður haldið því fram að enginn hafi tryggt sér fleiri fulltrúa en hann síðan Ronald Reagan var kjörinn forseti en það er einnig ekki rétt.

Barack Obama fékk 365 kjörfulltrúa árið 2008 og 332 árið 2012. Þá fékk Bill Clinton 379 kjörfulltrúa árið 1996 og George H W Bush fékk 426 árið 1988. Sum sé allir forsetar eftir Reagan, nema George Bush yngri, fengu fleiri kjörfulltrúa en Trump.

Þá er rétt að Trump er mjög vinsæll meðal kjósenda Repúblikanaflokksins en samkvæmt nýjustu könnun Gallup segja 39 prósent Bandaríkjamanna að hann standi sig vel í starfi, samkvæmt Washington Post.

Vilja bíða eftir Mueller

Leiðtogar Demókrataflokksins hafa reynt að draga úr tali nýrra þingmanna um að þvinga Trump úr embætti. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, segir mikilvægt að bíða eftir niðurstöðu í rannsókn Robert Mueller, sérstaks rannsakanda Dómsmálaráðuneytisins.

Sjá einnig: Nornirnar fuðra upp á báli Mueller

Hann var skipaður eftir að Trump viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa rekið James Comey, fyrrverandi yfirmann Alríkislögreglu Bandaríkjanna, vegna rannsóknar stofnunarinnar á afskiptum Rússlands af forsetakosningunum 2016. Mueller hefur verið gert að rannsaka þau afskipti og hvort framboð Trump hafi starfað með Rússum með einhverjum hætti. Þar að auki á Mueller að rannsaka alla aðra glæpi sem hann kemst á snoðir um við rannsókn sína.

Demókratar gætu samþykkt vantrauststillögu gegn Trump í fulltrúadeild þingsins en það væri erfitt að koma slíkri tillögu í gegnum öldungadeildina. Til þess þyrftu tuttugu eða fleiri þingmenn Repúblikanaflokksins að kjósa með tillögunni. Tveir þriðju öldungadeildarþingmanna þurfa að samþykja slíka tillögu.

Hin nýja þingkona Rashida Tlaib olli fljótt usla eftir að hún sór embættiseið í gær. Nokkrum klukkustundum seinna sagði hún opinberlega að hún og aðrir ætluðu sér að koma Trump úr embætti og blótaði hún forsetanum í ræðu sinni.

Myndband af hluta ræðunnar hefur farið víða um á netinu í dag.

Tlaib var þó einnig meðhöfundur greinar sem birt var í gær þar sem hún kallaði eftir því að Trump yrði þvingaður úr embætti. Hún sagði ljóst að hann væri alvarleg ógn gegn Bandaríkjunum.



„Nánast daglega ræðst hann gegn stjórnarskrá okkar, lýðræði, lögum og fólkinu. Framferði hans hefur leitt til stjórnarskrárkrísu sem nauðsynlegt er að leysa núna,“ skrifaði hún.

Aðrir þingmenn Demókrataflokksins hafa lýst því yfir að þeir muni leggja vantrauststillögu gegn Trump fyrir þingið. Undirbúningur fyrir slíkar tillögur er þegar hafinn.


Tengdar fréttir

Demókratar samþykktu að opna alríkisstofnanir

Nær öruggt er að Trump forseti neiti að skrifa undir og repúblikanar í öldungadeildinni ætla ekki að taka frumvörp fulltrúadeildarinnar til umræðu vegna þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×