Körfubolti

Valskonur nálgast toppliðin

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Valur og Stjarnan unnu bæði í dag
Valur og Stjarnan unnu bæði í dag Vísir/vilhelm
Valur hélt áfram sigurgöngu sinni og vann átta stiga sigur á Snæfelli þegar liðin áttust við að Hlíðarenda í Dominos-deild kvenna í dag. Valskonur hafa heldur betur eflst í kjölfarið af komu Helenu Sverrisdóttur og eru nú aðeins fjórum stigum á eftir efstu liðunum.

Það var hins vegar Heather Butler sem var atkvæðamest hjá Val í dag með 22 stig. Kristen McCarthy var öflugust hjá Snæfelli með 29 stig auk þess sem hún tók 16 fráköst.

Á sama tíma vann Stjarnan öruggan sigur á botnliði Breiðabliks 80-101 þar sem Bríet Sif Hinriksdóttir og Danielle Rodriguez fóru á kostum. Bríet sif gerði sér lítið fyrir og skoraði 37 stig. Rodriguez skilaði rosalegri tölfræðilínu með 27 stig, 10 fráköst og 16 stoðsendingar. 

Garðabæjarliðið með jafnmörg stig og Valur í 4.-5.sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×