Innlent

Lagafrumvarp um vegtolla lagt fram í mars

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Jón Gunnarsson er starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Jón Gunnarsson er starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Stöð 2/Bjarni Einarsson.
Jón Gunnarsson formaður umhverfis-og samgöngunefndar er bjartsýnn á að tímaáætlun samgönguáætlunar standist og lagafrumvarp um flýtiframkvæmdir og gjaldtöku verði lagt fram í mars á næsta ári. Nefndin kynnir tillögur um mögulegar fjármögnunarleiðir og gjaldtöku í vegakerfinu í janúar.

Nú í desember voru kynntar breytingartillögur við samgönguáætlun á Alþingi þar sem kom meðal annars fram að veggjöld verða tekin upp á öllum stofnbrautum út frá Reykjavík en einnig um allt land þar á meðal jarðgöngum landsins, og framkvæmdir í samgöngumálum stórauknar.

Nokkrir þingmenn úr stjórnarandstöðuflokkum gerðu alvarlegar athugasemdir við það að svo stórar grundvallarbreytingar væru lagðar fram þegar aðeins nokkrir dagar væru eftir af þingstörfum en stefnt var að samþykkt samgönguáætlunar fyrir áramót.

Afgreiðslu samgönguáætlunar var frestað nokkrum dögum síðar til 1. febrúar á næsta ári. Jón segir að búist sé við að nefndin skili tillögum um veggjöldin í janúar.

„Umhverfis og samgöngunefnd mun síðan hittast aftur um miðjan janúar og ljúka sinni umfjöllun um þetta mál og þá er reiknað með að ljúka afgreiðslu þess í þinginu um mánaðamótin janúar og febrúar.“

Starf nefndarinnar gangi samkvæmt áætlun.

„Umhverfis-og samgöngunefnd hefur verið að útfæra þær forsendur sem meirihlutinn þar vill að þetta snúist um, það er að segja, þessar breytingar á samgönguáætlun og þá útfærslu á þessum veggjaldahugmyndum,“ segir Jón.

Samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að samgönguáætlun verði afgreitt frá Alþingi í febrúar og í mars verði lagt fram lagafrumvarp um flýtiframkvæmdir og gjaldtöku. Jón telur að það náist.

„Við stefnum að því að ljúka þessu núna á vordögum þannig að ef um þetta næst sátt þá held ég að það sé ástæða til að vera bjartsýnn með það,“ segir Jón.


Tengdar fréttir

FÍB vill að ráðamenn skili bílasköttum til vegagerðar

Félag íslenskra bifreiðaeigenda óttast að innheimtukerfi vegtolla verði of dýr lausn fyrir örríki eins og Ísland og hvetur ráðamenn frekar til að láta þá skatta, sem þegar eru teknir af bíleigendum, renna til vegagerðar.

Bubbi vill ekki tolla

Rokkkóngurinn segir að þetta muni kosta heimili sitt 72 þúsund krónur á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×