Körfubolti

Haukur Helgi maður leiksins í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur í leik með franska liðinu.
Haukur í leik með franska liðinu. vísir/getty
Haukur Helgi Pálsson var frábær í sex stiga sigri Nanterre, 99-93, á Le Portel í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kövld.

Haukur og félagar voru ávallt með leikinn í höndum sér. Þeir leiddu 57-42 í hálfleik og voru 83-60 yfir fyrir lokaleikhlutann.

Þar slökuðu þeir aðeins á klónni en það kom ekki að sök og öflugur sigur Nanterre á heimavelli sem er komið upp í annað sæti deildarinnar.

Haukur var valinn maður leiksins í kvöld. Hann skoraði 22 stig og tók fimm fráköst á þeim 25 mínútum sem hann spilaði fyrir Nanterre í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×