Körfubolti

Curry tryggði Golden State sigurinn með flautukörfu

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Curry fagnar sigurkörfunni sinni
Curry fagnar sigurkörfunni sinni vísir/getty
Fjöldin allur af leikjum fór fram í NBA deildinni í nótt.



Stephen Curry og Kevin Durant áttu báðir mjög góðan leik í naumum sigri meistaranna í Golden State Warriors á Los Angeles Clippers, 129-127. Sigurkörfu Golden State skoraði Curry þegar 0,5 sekúndur voru til leiksloka.



Curry skoraði 42 stig í leikjum og þá var Durant með tvöfalda tvennu, eða 35 stig og 12 fráköst. Þetta var annar sigur meistaranna í röð.



LeBron James var með tvöfalda tvennu í liði Los Angeles Lakers en hann skoraði 22 stig, tók 14 fráköst ásamt því að bæta við 7 stoðsendingum í tapi gegn Memphis Grizzlies.



Memphis hafði tapað fimm leikjum í röð fyrir leikinn í nótt og var þetta því kærkomið hjá Grizzlies mönnum.



Gríðarleg spenna var í leik Portland Trail Blazers og Dallas Mavericks.



Slóvenska undrabarnið Luka Doncic jafnaði leikinn með flautuþristi þegar venjulegur leiktími rann út og þurfti því að framlengja leikinn. Þar reyndust Portland menn örlítið sterkari og báru sigurorð að lokum, 121-118.



Áðurnefndur Doncic skoraði 23 stig og tók 11 fráköst, en Harrison Barnes var stigahæstur í liði Dallas með 27 stig. Hjá Portland var það stjörnuleikmaðurinn Damian Lillard sem var stigahæstur en hann skoraði 33 stig.



Öll úrslit næturinnar:

Atlanta Hawks 98-95 Detroit Pistons

Washington Wizards 89-105 Indiana Pacers

Charlotte Hornets 103-119 Boston Celtics

Pheonix Suns 103-111 Brooklyn Nets

Chicago Bulls 112-92 Cleveland Cavaliers

Miami Heat 115-91 Orlando Magic

New Orleans Pelicans 117-122 Sacramento Kings

Minnesota Timberwolves 114-112 Oklahoma City Thunder

Los Angeles Clippers 127-129 Golden State Warriors

Dallas Mavericks 118-121 Portland Trail Blazers

Memphis Grizzlies 107-99 Los Angeles Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×