Lífið

Elín Metta og Guðmundur Björn njóta lífsins á Ítalíu

Sylvía Hall skrifar
Parið hefur verið að stinga saman nefjum undanfarið.
Parið hefur verið að stinga saman nefjum undanfarið. Fréttablaðið/Ernir/Instagram
Elín Metta Jensen, landsliðskona í knattspyrnu, er stödd á Ítalíu með Guðmundi Birni Þorbjörnssyni fréttamanni á RÚV. Guðmundur Björn birti mynd af Elínu Mettu á Instagram í dag.

Guðmundur og Elín Metta hafa verið að stinga saman nefjum undanfarin misseri en þau njóta nú jólanna á Ítalíu, nánar tiltekið í borginni Catania á Sikiley. 

Elín Metta er ein fremsta knattspyrnukona landsins, lykilleikmaður íslenska kvennalandsliðsins og spilar með Val í efstu deild hér á landi. Þá stundar hún nám í læknisfræði við Háskóla Íslands en það vakti athygli í sumar þegar hún gerði sér lítið fyrir og var efst í inntökuprófinu inn í læknadeildina.   

Guðmundur Björn er sem áður sagði fréttamaður á RÚV og naut mikilla vinsælda sem umsjónarmaður hlaðvarpsþáttarins Markmannshanskarnir hans Alberts Camus. Þá vakti hann athygli í sumar þegar hann var staddur í Rostov í Rússlandi að fjalla um leik Íslands gegn Króatíu á HM þegar mikil töf stríddi honum í útsendingu

Guðmundur Björn birti mynd af Elínu Mettu á Instagram í dag.Instagram

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×