Erlent

Jörðin skalf á Ítalíu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Gos hófst í eldfjallinu Etnu á aðfangadag.
Gos hófst í eldfjallinu Etnu á aðfangadag. Getty/Carmelo Pizzimenti
Að minnsta kosti 28 meiddust þegar 4,8 stiga jarðskjálfti reið yfir Sikiley, nærri eldfjallinu Etnu, í gær. Skjálftinn átti upptök sín nærri bænum Viagrande.

Tíu voru flutt á sjúkrahús vegna meiðsla sem fólkið hlaut af völdum braks er hrundi ofan á það. Skjálftinn var sá sterkasti frá því að gos hófst í Etnu á mánudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×