Lífið

Kim Kardashian fær að heyra það eftir nýjustu myndirnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
North með varalit og sléttað hár.
North með varalit og sléttað hár.
Kim Kardashian birti sex fjölskyldujólamyndir á Instagram á dögunum og hefur hún heldur betur fengið að heyra það i kjölfarið.

Ástæðan mun vera að North West, fimm ára dóttur Kim og Kanye West, er með varalit á öllum myndunum og sléttað hár.

Allir fjölskyldumeðlimir eru á myndunum, þau Kanye West og Kim Kardashian, North West, Saint West og Chicago West.

The Sun greinir frá þeirri hörðu gagnrýni sem Kim hefur fengið í kjölfarið.

„Af hverju þarf þessi unga stúlka að vera með varalit?,“ segir til að mynda einn aðdáandi á Instagram og fleiri fylgja á eftir.

„Fjögurra ára stúlka með varalit. Það er ekki í lagi með þig,“ segir einn fylgjandi Kim.

„Hættu að farða barnið þitt. Hún er falleg með krullur og án farða.“

„Hún lítur út eins og unglingur.“

„Það er alls ekki gott fyrir unga krakka að sjá svona.“

Hér að neðan má sjá myndirnar.

View this post on Instagram

Merry Christmas

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×