Íslenskur læknanemi gefur út tónlistarmyndband Stefán Árni Pálsson skrifar 30. desember 2018 12:00 Victor er á fimmta ári í læknisfræði.
Fimmta árs læknaneminn Victor Guðmundsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Doctor Victor frumsýnir í dag nýtt tónlistarmyndband við lagið Somebody Like You. Lagið gaf hann út í lok síðasta sumars, en myndbandið kemur út í dag. Victor er á sínu fimmta ári í læknisfræði við Jessenius Faculty of Medicine í Slóvakíu og kann vel við sig þar, en tónlistin hefur þó alltaf átt stóran part af lífi hans. Hann útskrifaðist með burtfararpróf úr klassískum píanóleik frá Tónlistarskóla Kópavogs þegar hann var tvítugur, en hann hóf svo að gera sína eigin tónlist eftir það. Eitt leiddi að öðru og hlutir fóru að gerast. „Þetta hefur þróast mjög mikið síðan ég byrjaði, en fyrst var ég bara að gera tónlist heima hjá mér í frítíma mínum og fór svo út í að spila á skemmtistöðum í Austrinu. Það fór svo að spyrjast út að það væri Íslendingur að spila í Slóvakíu og eftir það fékk ég gigg víðs vegar í Slóvakíu, Ungverjalandi og svo í Ísrael í fyrra þar sem ég hélt upp á jólin. En ég hef einnig spilað tvö ár í röð á Þjóðhátíð, sem var algjör snilld, og hef aðeins verið að spila í miðbæ Reykjavíkur þegar ég kem til landsins,“ segir Victor.En hver er sagan á bakvið myndbandið?„Ég kynntist strákunum hjá RVK Events fyrir um það bil tveimur árum, en þeir eru mjög fjölhæfir og hæfileikaríkir. Þeir sjá meðal annars um að halda utan um viðburði og hafa bókað mig á ýmis gigg, en þeir eru líka að taka upp myndbönd og gera alls konar hluti í kringum það. Við ákváðum að kíkja saman í smá ferðalag um Ísland nú í lok síðasta sumars nokkrir vinir og þá fannst þeim tilvalið að taka myndavélarnar með og skjóta myndband,“ segir Victor og bætir við að þeir hafi fengið aðstoð frá góðum samstarfsaðilum eins og SoNatural, Dagný & Co og Stracta Hotel. „Klippurnar inn á milli í myndbandinu eru af hinum og þessum giggum sem ég hef tekið á síðustu árum og er útkoman mjög skemmtileg.” Hann segir að spennandi tímar séu framundan. „Ég er núna að vinna í alls konar lögum með tónlistarfólki hér á landi sem og erlendis, þannig að það er nóg af nýrri tónlist á leiðinni og ég er mjög spenntur fyrir árinu 2019.” Hér að neðan má fylgjast með Victori á ýmsum samfélagsmiðlum og þar fyrir neðan má sjá tónlistarmyndbandið sjálft. Facebook - www.facebook.com/doctorvictorsound/Instagram - www.instagram.com/doctorvictorsound/Spotify - https://spoti.fi/2VcVksv YouTube - https://bit.ly/2VfPeaD
Tengdar fréttir Læknanemi í sumarstarfi á Landspítalanum treður upp á Þjóðhátíð "Somebody Like You er annað frumsamda lagið sem ég gef út sjálfur, en fyrir utan nokkur Remix sem ég hef gefið út var fyrsta lagið Feeling sem ég gaf út í fyrra ásamt norskum pródúser sem kallar sig HAV2,“ segir Victor Guðmundsson sem er í læknisfræði í Martin í Slóvakíu. 30. júlí 2018 11:30 Íslenskur læknanemi gerir það gott sem plötusnúður í Slóvakíu: „Er að rokka David Guetta greiðsluna“ "Ég byrjaði að spila hér úti í Slóvakíu árið 2015, en ég hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir tónlist síðan ég var ungur.“ 25. maí 2018 11:15 Mest lesið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Lífið Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Lífið Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Lífið Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Fleiri fréttir „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Kaleo gefur út sitt fyrsta lag í þrjú ár Víkingur Heiðar á smáskrifborðstónleikum Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Fögnuðu ekki bara plötunni með Júlí Heiðari heldur lífinu sjálfu „Fór langt fram úr mínum björtustu vonum“ Draumkennd framtíðarvitrun frá heitustu danssveit landsins Átján ára og stefna langt Súperstjörnur landsins fögnuðu með GDRN Hlustendaverðlaunin 2024: Þegar Sveppi og Ásgeir Orri mættu óvænt á sviðið Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn Hlustendaverðlaunin 2024: Barnakór tók undir með XXX Rottweiler Níu bónorðsbréf til sömu konunnar innblásturinn að nýjustu plötunni Hlustendaverðlaunin 2024: Tónlistaratriðin sem slógu í gegn Myndaveisla: Margt um dýrðir á Hlustendaverðlaunum 2024 Sjá meira
Læknanemi í sumarstarfi á Landspítalanum treður upp á Þjóðhátíð "Somebody Like You er annað frumsamda lagið sem ég gef út sjálfur, en fyrir utan nokkur Remix sem ég hef gefið út var fyrsta lagið Feeling sem ég gaf út í fyrra ásamt norskum pródúser sem kallar sig HAV2,“ segir Victor Guðmundsson sem er í læknisfræði í Martin í Slóvakíu. 30. júlí 2018 11:30
Íslenskur læknanemi gerir það gott sem plötusnúður í Slóvakíu: „Er að rokka David Guetta greiðsluna“ "Ég byrjaði að spila hér úti í Slóvakíu árið 2015, en ég hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir tónlist síðan ég var ungur.“ 25. maí 2018 11:15