Handbolti

Bjarki Már fer til Lemgo í sumar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Bjarki Már færir sig um set í Þýskalandi
Bjarki Már færir sig um set í Þýskalandi mynd/lemgo
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, hefur ákveðið að færa sig um set í Þýskalandi og yfirgefa Füchse Berlin. Hann gengur til liðs við Lemgo næsta sumar.

Hornamaðurinn gekk til liðs við Berlínarliðið árið 2015 og á tíma sínum þar hefur hann tvisvar orðið heimsmeistari félaglsiða og unnið EHF bikarinn.

Hann gerir samning við Lemgo, sem spilar í efstu deild í Þýskalandi líkt og Füchse Berlin, til ársins 2021.

„Þegar samningur manns er að renna út þá skoðar umboðsmaðurinn hvernig landið liggur, og ég fékk mjög gott tilboð frá Lemgo. Þá fór ég á fund með framkvæmdastjóranum hérna, og hann gat ekki gefið mér nein svör fyrr en í desember því málin áttu eftir að skýrast varðandi aðrar leikstöður í liðinu,“ sagði Bjarki við mbl.is.

„Þetta er nú yfirleitt þannig í félagsliðum hérna í Evrópu að menn plana allar aðrar stöður fyrst, áður en þeir ákveða sig varðandi vinstra hornið. Án djóks. Það er oftast auðveldast að manna hana. Ég talaði tvisvar við framkvæmdastjórann en hið sama var uppi á teningnum. Tilboðið sem Lemgo bauð er líka betra fyrir mig en það sem ég hef hér, sem er svolítið sérstakt.“

Bjarki Már var í gær valinn í hóp þeirra 28 leikmanna sem koma til greina fyrir HM í Þýskalandi og Danmörku hjá íslenska landsliðinu. Bjarki hefur um áraraðir verið í þeirri stöðu að berjast við síunga landsliðsfyrirliðann Guðjón Val Sigurðsson um sæti í liðinu.

„Við erum ekki með þessa samkeppni í neinni annarri stöðu, með fullri virðingu fyrir leikmönnum í öðrum stöðum. Það er smá pirrandi, en svona er þetta og það kemur bara í ljós hvernig þetta verður,“ segir Bjarki.

19. desember verður skorið niður í 20 manna æfingahóp og HM-hópurinn sjálfur mun aðeins innihalda 16 leikmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×