Innlent

Telur „afar óviðeigandi“ að vera í gallabuxum í þingsal

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að þingmenn klæði sig betur.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að þingmenn klæði sig betur. Vísir/Vilhelm
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði klæðaburð þingmanna að umtalsefni sínu undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hann kvaðst oft hafa velt því fyrir sér hvers vegna sú skylda var afnumin þingveturinn 2009 til 2013 að karlmenn sem sitja á þingi þurfi að vera með bindi.

„Ég hef velt því fyrir mér hvort að slík tilslökun verði ekki til þess að þær góðu hefðir sem hér ríkja að þær verði ekki til þess að við förum að slaka á almennt í klæðnaði hér í þingsalnum. Sem mér finnst skipta mjög miklu máli en auðvitað eru skiptar skoðanir um það. Mér finnst það eðlilegt,“ sagði Ásmundur.

Hann sagði svo að hann teldi þá löngu hefð sem verið hefði fyrir formlegum og snyrtilegum klæðnaði við þingstörfin illa brotna af þingmönnum.

„Ég held að þessi tilmæli hér innihaldi það ekki að við klæðumst gallabuxum hér í þingsalnum sem mér finnst afar óviðeigandi. Ég legg það til svo við förum ekki öll í jólaköttinn að við tökum okkur taki og berum virðingu fyrri klæðnaði hér í þingsal,“ sagði Ásmundur.

Vísi er ekki kunnugt um hvort einhver þingmaður sé í gallabuxum við þingstörfin í dag en þetta er ekki í fyrsta sinn sem gallabuxur þingmanna eru til umræðu. Þannig mætti Elín Hirst, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í gallabuxum til þings árið 2013 en við það var gerð athugasemd og hét hún því að skipta um buxur.

Daginn eftir kom Elín svo gallabuxunum til varna og sagðist vilja passa upp á það að þingmenn yrðu ekki forpokaðir. Þá kvaðst hún vilja vekja á misréttinu sem viðgengist á þinginu það er að svartar, grænar, drapplitaðar og rauðar gallabuxur væru leyfðar en ekki bláar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×