Körfubolti

Sjáðu LeBron James og Dwyane Wade breytast í gegnum árin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James og Dwyane Wade eftir síðasta leikinn.
LeBron James og Dwyane Wade eftir síðasta leikinn. Vísir/Getty
LeBron James og Dwyane Wade mættust í síðasta sinn í NBA-deildinni í körfubolta í byrjun vikunnar en þessir vinir og fyrrum liðsfélagar hafa verið ansi oft á sama körfuboltavelli á glæsilegum ferli sínum í deildinni.

LeBron James og Dwyane Wade unnu NBA-titilinn tvisvar saman með Miami Heat (2012 og 2013) en þeir hafa einnig orðið NBA-meistarar án hvors annars, Wade með Miami Heat árið 2006 og James með Cleveland Cavaliers 2016.



ESPN notaði tækfærið og setti saman skemmtilegt samanburðarmyndaband af þeim LeBron James og Dwyane Wade þar sem notaðar voru opinberar myndir sem eru teknar af öllum leikmönnum fyrir tímabilið.

Þar sést hvernig þeir LeBron James og Dwyane Wade hafa breyst í gegnum árin allt frá því að Dwyane Wade kom inn í NBA-deildina árið 2003 og LeBron James var enn í menntaskóla.

Dwyane Wade er á sínu sextánda og síðasta tímabili í NBA en leikurinn á sunnudagskvöldið var seinni leikur Miami Heat og Los Angeles Lakers í vetur. Þau eru aldrei að fara að mætast í úrslitakeppninni og það vissu því allir að LeBron James og Dwyane Wade voru þarna að mætast í síðasta skiptið.

LeBron James er tveimur árum yngri en Dwyane Wade. LeBron James á samt meira en tvö ár eftir því hann ætlar sér að spila með elsta stráknum sínum í NBA og hefur eflaust einnig sett stefnuna á að bæta stigameti Kareem Abdul Jabbar.

Myndbandið með samanburðinum á LeBron James og Dwyane Wade má sjá hér fyrir neðan.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×