Innlent

Áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu undirrituð

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller, landlæknir undirrita Áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu 2019-2030
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller, landlæknir undirrita Áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu 2019-2030 Vísir/JóhannK
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma Möller landlæknir kynntu nú fyrir hádegið áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu til næstu ellefu ára. Ráðherra segir áætlunina lið í að ná utan um vanda heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi.

Áætlunin um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu 2019–2030 var samþykkt og undirrituð af heilbrigðisráðherra og landlækni í morgun en með henni eru sett fram mikilvæg viðmið og leiðbeiningar um grundvallarþætti heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi.

Áætlunin mun ásamt Heilbrigðisstefnu ráðherra, sem nú er í umsagnarferli, verða einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar. Svandís segir áætlunina fyrst og fremst ná til öryggis- og gæðamála.

„Við erum í rauninni að tala um að það sé farið sérstaklega yfir þá þjónustu sem verið er að veita og að hún sé þannig að öryggi sjúklinga sé í fyrirrúmi í öllum þáttum þjónustunnar. Alveg sama hvort við erum að tala um heilsugæsluna eða flóknar aðgerðir á Landspítalanum og svo framvegis,“ segir ráðherra.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherravísir/vilhelm

Vandi heilbrigðisþjónustunnar mikill

Vandi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi er margþættur og undanfarna daga höfum við heyrt af miklu álagi sem er á Landspítalanum. Forstjóri spítalans sagði í vikulegum pistli sínum á föstudag að rúmanýting hefði keyrt um þverbak en nýtingin var 117 prósent.

Hann bætti við að við þær aðstæður væri augljóst að öryggi sjúklinga sé ekki tryggt. 

Erum við búin að ná utan um vandann sem er í heilbrigðisþjónustunni á Íslandi?



„Nei við erum engan veginn búin að því. Við erum að setja saman heilbrigðisstefnu. Hún er í drögum á Samráðasgátt Stjórnarráðsins en heilbrigðisstefna er grundvöllur þess að við sjáum heildarmyndina og getum komið í veg fyrir það að við séum annars vegar í tvíverknaði og hins vegar séum við að hlaða upp biðlistum þannig að við séum í raun og veru með heildarsýnina og stefnan sé heildræn og samfelld og öryggi sjúklinga sé í fyrirrúmi alls staðar,“ sagði Svandís.

Alma D. Möller, landlæknirStöð 2/Aðsend
Þannig mun áætlunin fylgja heilbrigðisstefnu ráðuneytisins sem nú er í umsagnarferli. Alma D. Möller landlæknir segir áætlunina til þess að takast á við vandamálin innan heilbrigðisþjónustunnar.

„Þetta einmitt hjálpar okkur að taka á þeim og þetta er eitt af því sem að við höfum ekki efni á að gera ekki,“ segir Alma.


Tengdar fréttir

Raunhæfa og markvissa heilbrigðisstefnu fyrir alla

Eitt markmiða í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er að fullvinna heildstæða heilbrigðisstefnu fyrir Ísland með hliðsjón af þörfum allra landsmanna og skilgreina betur hlutverk einstakra þátta innan heilbrigðisþjónustunnar og samspil þeirra.

Öldrunarþjónustan á Íslandi - brettum upp ermar!

Í grein sem kom út í hinu virta breska læknatímariti Lancet í maí 2017 var birtur samanburður á aðgengi og gæðum heilbrigðisþjónustu meðal 195 landa og svæða í heiminum árin 1990 til 2015. Hafnaði Ísland þar í öðru sæti rétt á eftir smáríkinu Andorra með næstbestu vísitölu aðgengis og gæða.

Alvarlegt ástand á Landspítalanum

Alvarlegt ástand skapaðist á Landspítalanum í síðustu viku og fór nýting rúma á bráðalegudeild upp í 117 prósent. Læknaráð bendir á að partur af vandanum sé vegna lakrar þjónustu við aldraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×