Fótbolti

Þessum liðum geta ensku liðin mætt í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Klopp bíður væntanlega spenntur eftir drættinum.
Klopp bíður væntanlega spenntur eftir drættinum. vísir/getty
Riðlakeppninni í Meistaradeildinni lauk í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða liðum ensku liðin geta mætt í 16-liða úrslitunum.

Manchester City var eina enska liðið sem vann sinn riðil og fá þeir líklega þægilegasta dráttinn af öllum ensku liðunum.

Tottenham, Liverpool og Manchester United enduðu öll númer tvö í sínum riðlum og það eru allar líkur á því að þeirra bíður erfitt verkefni í febrúar.

Dregið verður í Nyon á mánudaginn en leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram í febrúar eins og áður segist.

Hér að neðan má sjá liðin sem ensku liðin geta mætt.

Mögulegir mótherjar ensku liðanna:

Manchester City:


Atletico Madrid

Schalke

Ajax

Roma

Tottenham:

Dortmund

PSG

Porto

Bayern Munchen

Real Madrid

Juventus

Liverpool:

Dortmund

Barcelona

Porto

Bayern Munchen

Real Madrid

Juventus

Man. Utd:

Dortmund

PSG

Barcelona

Porto

Bayern Munchen

Real Madrid


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×