Innlent

Ganga hvorki erinda fíknar né kanna­biskapítal­ista

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar. Vísir/Vilhelm
Í umsögn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við þingsályktunartillögu Pírata um notkun og ræktun lyfjahamps segir að áróður fyrir lögleiðingu kannabisefna sé borinn uppi af þeim sem hyggist græða á sölunni og kannabisfíklum. Halldóra Mogensen sver allt slíkt tal af sér.

„É
g legg þessa þingsályktunartillögu fram fyrst og fremst út af því að ég verð vör við að það er fólk í samfélaginu sem er að kalla eftir þessu, sem er að nýta sér þetta og er að gera það ólöglega,“ segir Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og einn flutningsmanna tillögunnar um að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem heimili notkun og framleiðslu lyfjahamps, sem líklega er betur þekktur sem kannabis.

Þegar hafa borist nokkrar um­sagnir við tillöguna sem nú er í vel­ferðarnefnd sem Halldóra veitir formennsku. Umsagnir Krabbameinsfélags Íslands, Lyfjafræðingafélags Íslands, lækna og fleiri hafa almennt verið neikvæðar. Í það minnsta er varað við að tillagan verði samþykkt í núverandi mynd. Fáir ganga þó lengra í fordæmingu sinni á hugmyndinni um kann­abis í læknisfræðilegum tilgangi en Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga, og Kristján Linnet lyfjafræðingur í nokkuð harðorðri umsögn sem þeir skrifa fyrir hönd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar segir meðal annars:

„Nú fer um heiminn bylgja áróðurs fyrir lögleiðingu kannabis sem löglegs fíkniefnis sem borin er uppi af hagsmunaaðilum sem hyggjast græða á sölu þess og að einhverju leyti af fólki sem haldið er tetra­hýdrókannabínol-fíkn. Það er gjarna gert undir því yfirskini að um gagnlegt lyf sé að ræða.“

Enn fremur að það að leyfa ræktun og notkun svokallaðs „lyfjahamps“ sé „augljóslega fyrst og fremst sett fram í þeim tilgangi að leyfa sölu ávanabindandi vímuefnis. Heilsugæslan varar við afleiðingunum af því, versnandi lýðheilsu og miklum kostnaðarauka fyrir heilbrigðiskerfið.“

Halldóra vísar því á bug að ganga erinda kannabiskapítalista sem ætli sér að hagnast á sölunni.

„Ég er aðallega að hugsa um veikt fólk sem vill geta nýtt sér þetta lyf og er að ganga út frá þeim mikla fjölda rannsókna sem er til staðar og hvernig hvert landið á fætur öðru er farið að lögleiða þetta til lækninga. Það er eina ástæðan fyrir því að ég legg þetta fram. Mér er ekkert hugað um hvernig bissnessinn verður, enda legg ég útfærsluna algjörlega í hendur heilbrigðisráðherra,“ segir Halldóra.


Tengdar fréttir

Vill skapa umræðu um kannabis í lækningaskyni

Píratinn Halldóra Mogensen segir ætlun þingsályktunartillögu hennar er snýr að lögleiðingu lyfjahamps, þ.e. kannabis í lækningaskyni, sé að skapa umræður í samfélaginu um málaflokkinn. Hún segir enn fremur að að full lögleiðing kannabis sé óhjákvæmileg þróun.

Nauðungarvistaðir vegna geðrofs af völdum kannabisneyslu

Málum þar sem ungir karlmenn eru nauðungarvistaðir vegna geðræns vanda sem er afleiðing kannabisneyslu hefur fjölgað mikið fyrir dómstólum og skipta þau tugum á ári hverju. Þetta segir dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sem hefur haft mörg slík mál til meðferðar. Hann kallar eftir átaki í fræðslu fyrir þennan hóp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×