Körfubolti

50 stig og þreföld tvenna hjá Harden

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
James Harden var frábær í nótt
James Harden var frábær í nótt vísir/getty
James Harden átti algjöran stórleik í sigri Houston Rockets á Los Angeles Lakers í NBA deildinni í körfubolta í nótt.

Harden lauk leik með þrefalda tvennu, skoraði heil 50 stig ásamt því að taka 10 fráköst og gefa 11 stoðsendingar í 126-111 sigri Rockets í Houston.

LeBron James setti 29 af stigum Lakers í leiknum og þurfti að sætta sig við tap eftir tvo sigurleiki í röð. James var ósáttur við hversu oft samherjar hans brutu á Harden og sendu hann á vítalínuna.

„Þú getur ekki sent hann á línuna, hann er nógu hæfileikaríkur fyrir. Hann getur sett boltann í holuna á marga vegu, þú getur ekki gefið honum svona auðveld stig,“ sagði James í leikslok.

James og fleiri félagar hans í liði Lakers voru ósáttir við dómgæsluna í nótt og tóku upp á því í seinni hálfleik að verjast með hendur fyrir aftan bak til þess að sanna fyrir dómurunum að þeir væru ekki að brjóta af sér.

„Vorum bara að reyna að verjast án þess að fá villu. Þú þarft að passa þig á því þegar þú spilar við Houston. Þeir geta selt villur mjög vel, Chris Paul og James Harden sérstaklega.“





Í San Antonio unnu heimamenn í Spurs sinn fjórða leik í röð og náðu í stærsta sigur tímabilsins til þessa þegar þeir höfðu betur gegn LA Clippers 125-87.

LaMarcus Aldridge skoraði 27 stig fyrir Spurs og Rudy Gay setti 21.

Vörn hefur verið aðalsmerki San Antonio undir Gregg Popovich en hún hefur ekki látið mikið kræla á sér í vetur. Það hefur hins vegar breyst í síðustu leikjum og hefur andstæðingurinn ekki náð að skora meira en 100 stig í síðustu þremur leikjum Spurs.





Lið Phoenix Suns vann í fyrsta skipti í langan tíma í kvöld, tíu stiga sigur á Dallas Mavericks var fyrsti sigurinn eftir 10 tapleiki í röð.

Dirk Nowitzki snéri aftur í lið Dallas í leiknum en hann hefur ekkert getað spilað á tímabilinu eftir að hafa gengist undir aðgerð á ökkla. Nowitzki hefur nú spilað á 21 tímabili fyrir Mavericks sem er meira en nokkur hefur gert með einu og sama félaginu í sögu NBA.

Lið Dallas virðist ekki geta unnið Phoenix Þetta var sjöunda tapið í röð fyrir Suns og kom eftir 8 sigurleiki úr síðustu 10 í deildinni. Skotnýting gestanna var með því verra sem fyrir finnst, þeir hittu aðeins 5 af 33 þriggja stiga skotum sínum.

T.J. Warren átti sinn besta leik á tímabilinu með 30 stig fyrir Phoenix.





Úrslit næturinnar: 

Houston Rockets - Los Angeles Lakers 126-111

San Antonio Spurs - LA Clippers 125-87

Orlando Magic - Chicago Bulls 97-91

Phoenix Suns - Dallas Mavericks 99-89

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×