Handbolti

Stefán Rafn með sex mörk í öruggum sigri Szeged

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Stefán Rafn átti góðan leik í dag
Stefán Rafn átti góðan leik í dag mynd/szeged
Stefán Rafn Sigurmannsson átti góðan leik í liði SC Szeged en hann skoraði sex mörk í öruggum sigri á Csurgól.



Szeged heimsótti Csurgól í síðasta leik liðsins á árinu en liðið hefur farið hamförum í ungversku úrvalsdeildinni og hafa unnið alla sína leiki.



Ekki breyttist það í dag er liðið mætti Csurgól.



Szeged leiddi með þremur mörkum í hálfleik en ungversku meistararnir fóru svo hamförum í seinni hálfleik og stungu þá heimamenn af.



Lokatölur urðu 36-25, Szeged í vil og endar liðið því á góðu nótunum. Sextán leikir, og sextán sigrar. Szeged hefur tólf stiga forystu á Veszprém en þetta var síðasti leikurinn í deildinni fyrir jólafrí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×