Handbolti

Ísak setti tvö í Austurríki

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Ísak átti ágætisleik í Austurríki
Ísak átti ágætisleik í Austurríki vísir/ernir
Ísak Rafnsson skoraði tvö mörk í sigri Schwaz á Ferlach í austurrísku úrvalsdeildinni í kvöld.



Schwaz fékk Ferlach í heimsókn í kvöld og í upphafi leiks var allt í járnum.



Í stöðunni 6-6 byrjuðu Schwaz að síga fram úr og náðu þeir fjögurra marka forystu um miðbik fyrri hálfleiks.



Schwaz hélt þessari fjögurra marka forystu þangað til flautað var til hálfleiks, en þá var staðan 19-15.



Svipað var upp á teningnum í seinni hálfleik en Schwaz náði sex marka forystu í upphafi seinni hálfleiks. Eftir það minnkaði Ferlach muninn. Sigur Schwaz var þó aldrei í hættu og lokatölur 31-28.



Líkt og áður segir, átti Ísak Rafnsson ágætisleik með Schwaz og skoraði hann tvö mörk. Schwaz er í fimmta sæti austurrísku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×