Handbolti

Fimm íslensk mörk í öruggum sigri Elverum

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Sigvaldi í leik með landsliðinu
Sigvaldi í leik með landsliðinu vísir/daníel
Sigvaldi Guðjónsson skoraði þrjú mörk og Þráinn Orri Jónsson bætti við tveimur mörkum í öruggum sigri Elverum í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.



Elverum fékk Falk Horten í heimsókn og var Elverum ekki í neinum vandræðum.



Elverum leiddi með sex mörkum í hálfleik og sama var upp á teningnum í seinni hálfleik.



Elverum vann seinni hálfleikinn einnig með sex mörkum og unnu því leikinn með tólf mörkum, 27-15.



Elverum er í hörku baráttu á toppi deildarinnar, en liðið er í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Arendal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×