Körfubolti

Dagur Kár skoraði tólf stig í eins stigs tapi

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Dagur Kár skoraði tólf stig í kvöld og klúðraði flautuþrist
Dagur Kár skoraði tólf stig í kvöld og klúðraði flautuþrist
Dagur Kár Jónsson átti fínan leik með Flyers Wels í austurrísku úrvalsdeildinni í körfubolta, en hann skoraði 12 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar í eins stigs tapi á BC Vienna.



Dagur var í byrjunarliði Wels að vanda.



Það byrjaði ekki vel hjá Wels í leiknum í kvöld en þeir voru tíu stigum undir að loknum fyrsta leikhluta.



Dagur og liðsfélagar hans söxuðu hægt og bítandi á forkost Vienna og var það Dagur sem kom Wels loks yfir með flautukörfu undir lok þriðja leikhluta.



Wels náði mest sjö stiga forskoti um miðbik fjórða leikhluta en þá tóku Vienna við sér og komust yfir þegar 26 sekúndur voru til leiksloka, 73-72.



Wels héldu í lokasóknina, einu stigi undir þegar sjö sekúndur voru til leiksloka, og reyndi Dagur við þriggja stiga körfu til þess að vinna leikinn fyrir Wels en skot hans geigaði. Lokatölur 75-74 í spennandi leik.



Wels er í næst neðsta sæti deildarinnar eftir 11 leiki, og eru þeir sex stigum frá úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×