Enski boltinn

Klopp: Besta lið Everton síðan ég tók við

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Klopp og Silva munu stýra sínum liðum á morgun í baráttunni um Liverpool borg
Klopp og Silva munu stýra sínum liðum á morgun í baráttunni um Liverpool borg vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool segir Everton liðið sem lærisveinar hans munu mæta á morgun sé það besta á hans tíð sem stjóri Liverpool.



Liverpool og Everton mætast í baráttunni um Liverpool borg á Anfield á morgun.



Marco Silva tók við Everton fyrir tímabilið og er þetta í fyrsta sinn sem þeir mætast á stjórastólnum.



Liverpool eru taplausir í síðustu fimmtán leikjum gegn Everton.



Klopp segir að Silva sé með betra lið en fyrirrennarar hans í starfi hjá Liverpool, þeir Roberto Martinez, Ronald Koeman og Sam Allardyce.



„Þetta verður alvöru leikur, en því má búast við í nágrannaslag. Þannig eiga nágrannaslagir að vera,“ sagði Klopp.



„Silva er með besta hópinn síðan ég kom til Liverpool. Þeir hafa verið duglegir á leikmannamarkaðnum síðustu ár en liðið í ár er það besta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×