Enski boltinn

Salah vill vinna titla með Liverpool á þessu tímabili

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Salah vill vinna titila
Salah vill vinna titila vísir/getty
Mohamed Salah vill sjá Liverpool fara alla leið og vinna titla á þessu tímabili.



Sex ár eru síðan Liverpool vann síðast titil en það var deildabikarinn árið 2012.



Liverpool komst mjög nálægt því að vinna titil á síðasta tímabili en þá töpuðu þeir í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Real Madrid



Salah var frábær á síðasta tímabili og skoraði 44 mörk í öllum keppnum. Hann fór hins vegar útaf vegna meiðsla í úrslitaleiknum gegn Madrid.



„Markmið mitt á síðasta tímabili var ekki aðeins að brjóta markametið, heldur einnig að vinna eitthvað með félaginu. Við vorum nálægt því í Meistaradeildinni en svona er fótboltinn,“ sagði Salah.



„Á þessu tímabili horfi ég ekki eins mikið á einstaklings frammistöðuna, heldur núna er mitt helsta markmið að vinna eitthvað fyrir félagið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×