Handbolti

Sigvaldi tryggði Elverum jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sigvaldi lék sína fyrstu keppnisleiki með íslenska landsliðinu í lok síðasta mánaðar.
Sigvaldi lék sína fyrstu keppnisleiki með íslenska landsliðinu í lok síðasta mánaðar. Vísir/Daníel
Sigvaldi Björn Guðjónsson tryggði Elverum stig gegn Ademar Leon í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Íslendingalið Elverum er því aðeins einu stigi frá toppliðum D-riðilsins.

Þráinn Orri Jónsson skoraði þrjú mörk og Sigvaldi tvö í 24-24 jafnteflinu. Simen Holand Pettersen var markahæstur með sex.

Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en heimamenn í Ademar þó alltaf skrefinu á undan. Staðan var 14-13 í hálfleik.

Í upphafi seinni hálfleiks komst Elverum yfir og voru gestirnir skrefinu á undan nær allan seinni hálfleikinn.

Heimamenn komust yfir á 59. mínútu leiksins en Sigvaldi skoraði jöfnunarmarkið fyrir gestina frá Noregi á síðustu sekúndum leiksins og tryggði stigið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×