Innlent

Bein útsending: Fyrsti þingfundur eftir Klaustursupptökurnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þingmennirnir sem voru á Klaustur bar þann 20. nóvember síðastliðinn. Ólafur Ísleifsson, Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir.
Þingmennirnir sem voru á Klaustur bar þann 20. nóvember síðastliðinn. Ólafur Ísleifsson, Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir.
Þing kemur saman í fyrsta sinn í dag eftir að fjölmiðlar hófu að fjalla um Klaustursupptökurnar svokölluðu en þar má heyra illt umtal þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins í garð samstarfsmanna sinna og annars nafntogaðs fólks sem hefur komið nálægt stjórnmálum undanfarin ár.

Greint var frá því í Fréttablaðinu að þingfundur muni hefjast á óhefðbundinn hátt en samkvæmt heimildum blaðsins mun Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, lesa stutta yfirlýsingu frá forseta vegna uppákomunnar á Klaustur bar.

Tveir þingmenn Miðflokksins, þeir Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason, ætla að fara í leyfi vegna málsins og þá voru þeir Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason reknir úr Flokki fólksins fyrir helgi en Ólafur er formaður þingflokks Flokks fólksins og Karl Gauti varaformaður.

Á dagskrá þingfundar er síðan óundirbúinn fyrirspurnatími, framhald 2. umræðu og atkvæðagreiðsla um veiðigjöld og svo fyrri umræða um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019 til 2023.

Fylgjast má með beinni útsendingu frá þingfundi í spilaranum hér fyrir neðan. Fundurinn hefst klukkan 15.


Tengdar fréttir

Telur rétt að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort lögbrot hafi verið framið

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata telur einboðið að ríkissaksóknari opni rannsókn á því hvort þingmenn hafi brotið gegn 128. gr. almennra hegningarlaga, sem fjalla um brot í opinberu starfi, með meintum hrossakaupum þingmanna með sendiherraembætti en fullyrðingar þess efnis náðust á "Klaustursupptökunum“ svokölluðu.

Segir þingfund hefjast á óhefðbundinn hátt

Fyrsti þingfundur eftir að samtal þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins var gert opinbert verður í dag. Kollegar þeirra leita nú leiða til að koma þingmönnunum í skilning um að þeir verði að víkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×