Viðskipti innlent

Marel sagt vera á leið í dönsku kauphöllina

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel þegar Lars Løkke heimsótti Marel á sunnudag,.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel þegar Lars Løkke heimsótti Marel á sunnudag,. Vísir/Marel á Íslandi
Marel er sagt vera með það til alvarlegrar skoðunar að skrá félagið í Kauphöllina í Kaupmannahöfn að því er fram kemur í frétt Berlingske Tidende. Félagið hefur haft tvíhliða skráningu til skoðunar í nokkrum evrópskum kauphöllum.

Þar hafa kauphallirnar í Lundúnum, Amsterdam og Kaupmannahöfn komið til greina. Berlingske Tidende, sem fjallar um málið undir fyrirsögninni: „Stærsta fyrirtæki Íslands gæti verið á leið á markað í Danmörku“ vitnar í yfirlýsingu Marel þar sem kemur fram að félagið hafi tvíhliða skráningu til skoðunar samhliða skráningu í Kauphöll Íslands.

Í umfjöllun Berlingske kemur fram að enska ráðgjafarfyrirtækið STJ Advisors hafi verið fengið til kanna möguleikann á tvíhliða skráningu í mismunandi löndum. London sé stærsti hlutabréfamarkaðurinn af þeim þremur sem komi til greina en áhætta fylgi skráningu þar vegna fjölda félaga. Amsterdam komi til greina þar sem Marel hafi þegar starfsemi í Hollandi en það sé einnig tilfellið í Danmörku þar sem starfsemi Marel hafi vaxið ört á síðustu árum. Í frétt Berlingske kemur fram að fjölmargir fjárfestingarbankar á Norðurlöndunum vinni nú hörðum höndum að því að sannfæra fyrirtækið og ráðgjafa þess um að velja Kaupmannahöfn.

Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel var í ítarlegu viðtali við fréttastofuna hinn 1. nóvember sl. þar sem hann fór yfir framtíðarhorfur félagsins og áform um tvíhliða skráningu Marel. 

Marel er leiðandi á heimsvísu í þróun á tækjum og búnaði til matvælavinnslu. Fyrirtækið veltir rúmlega milljarði evra og starfsmenn eru 5.500. Þar af 600 í höfuðstöðvunum í Austurhrauni í Garðabæ.

Ein meginröksemdin fyrir skráningu í Danmörku er sú staðreynd að félagið hefur 600 starfsmenn í Danmörku. Alls 250 í Árósum og 320 starfsmenn í Støvring og Holbæk. Fram kemur í frétt Berlingske að þessi ríku tengsl við Danmörku hafi þannig skipt máli þegar Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur hafi ákveðið að heimsækja höfuðstöðvar Marel í Garðabæ á sunnudag. Lars Løkke hann var hér á landi í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands.

Markaðsverðmæti Marel er um 290 milljarðar króna, jafnvirði 15,5 milljarða danskra króna. Í samanburði við dönsk félög þá er það svipað verðmætt og danska iðnfyrirtækið FLSmidth og skipafélagið DFDS sem eru bæði skráð í dönsku kauphöllinni. 

Íslenski stoðtækjaframleiðandinn Össur, annað leiðandi fyrirtæki í sinni grein, var skráð í Kauphöllina í Kaupmannahöfn árið 2009. Síðan þá hefur félagið, sem hefur höfustöðvar sínar í Reykjavík, verið afskráð í Kauphöll Íslands og er aðeins skráð á hlutabréfamarkað í Kaupmannahöfn.

Erindi um tvíhliða skráningu Marel verður að öllum líkindum lagt fyrir aðalfund félagsins sem fer fram hinn 6. mars 2019. 

Í fréttum Stöðvar 2 á sunnudag var innlit í nýsköpunarkjarna Marel í Austurhrauni. Sjá má umfjöllun í myndskeiði hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Viðskiptahindranir gætu sett strik í reikninginn hjá Marel

Viðskiptahindranir og umrót í alþjóðakerfinu mynda ósamræmi í framboði og eftirspurn matvæla innan heimshluta sem gæti leitt til þess að eftirspurn eftir tækjum frá Marel verði ekki jafn mikil á næstunni og hún hefur verið að undanförnu. Þetta segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marels.

Marel á markað í Evrópu

Stjórnendur Marels stefna á tvíhliða skráningu í kauphöll í Evrópu og á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×