Körfubolti

Sverrir: Ég er mjög ánægður með sigurinn

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Sverrir var kampakátur í leikslok
Sverrir var kampakátur í leikslok vísir/ernir
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflvíkinga var að vonum kampakátur með góðan sigur sinna manna gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld.

 

„Ég er mjög ánægður með leikinn og sigurinn. Menn gerðu vel það sem við erum búnir að vera tala um og vera reyna að vinna í á æfingum. Við verðum að taka það góða úr þessum leik og halda áfram að bæta í,“ sagði Sverrir.

 

Dominos-deildin hófst aftur eftir landsleikjahlé en Sverrir segir að það hafi verið kostir og gallar að fá fríið á þessum tímapunkti en Keflvíkingar voru búnir að vera slappir fyrir frí.

 

„Já og nei. Það er hundleiðinlegt eftir lélegan leik að fá ekki að spila í tvær vikur. En ég tel okkur hafa nýtt fríið vel í að vinna í okkar hlutum. Við gerðum vel í kvöld. Þetta er alltaf þannig að maður má ekki halda það að allt sé frábært og að þetta sé komið þótt svo þú vinnir einn góðan sigur.“

 

Aðspurður hverjar áherslurnar voru í fríinu, var það sóknarleikurinn sem var efst í huga Sverris.

 

„Til dæmis unnum við mikið í sóknarleiknum okkar, hreyfa boltann betur og hreyfa okkur betur án bolta og detta ekki bara í það að gefa bara á Craion undir körfunni og vera svo bara eins og áhorfendur hinir fjórir.“

 

Reggie Dupree var ekki í leikmannahópi Keflvíkinga í kvöld vegna meiðsla en Sverrir býst við honum klárum í næsta leik liðsins.

 

„Hann var tæpur fyrir Haukaleikinn aftan í læri og tognaði í honum. Hann er bara ekki orðinn nógu góður þannig við þorðum ekki að taka séns með hann. Vona að hann verði kominn í næsta leik.“

 

Ágúst Orrason kom inn í byrjunarlið Keflavíkur í stað Reggie en hann hefur ekki verið að fá margar mínútur í síðustu leikjum. Sverrir var ánægður með hans innkomu í kvöld.

 

„Ég þurfti auðvitað að setja einhvern inn fyrir Reggie. Gústi er búinn að vera flottur á undanförnum æfingum og er auðvitað með betri skyttum á landinu þegar hann hitnar.“

 

Keflavík byrjaði af gríðarlegum krafti í kvöld og fyrsti leikhluti liðsins er að mati undirritaðs einhver sá besti hjá Keflvíkingum í vetur. Sverrir var sammála því.

 

„Já algjörlega. Það var eiginlega allt sem gekk vel, við vorum að hitta vel, góð hreyfing á bolta og vörnin frábær. Ég verð að vera sammála því.“

 

Gríðarleg stemmning var í liði Keflvíkinga eftir töluvert andleysi í síðustu leikjum. Stemmningin hófst strax í upphitun og smitaði svo frá sér í leiknum sjálfum.

 

„Já við leggjum alltaf upp með það. Það var mikill hugur í strákunum, búnir að bíða í tvær vikur eftir að spila eftir tapið gegn Haukum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×