Körfubolti

Túrbóleikur í Toronto þar sem 51 stig frá Kevin Durant dugði ekki Golden State

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant og Kawhi Leonard voru stigahæstu menn vallarins í nótt.
Kevin Durant og Kawhi Leonard voru stigahæstu menn vallarins í nótt. Vísir/Getty
51 stig frá sjóðheitum Kevin Durant dugði NBA-meisturum Golden State Warriors sem töpuðu á móti toppliði Toronto Raptors í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt. Los Angeles Lakers vann sinn leik og endaði taphrinu sína.

Kawhi Leonard skoraði 37 stig fyrir Toronto Raptors í 131-128 sigri á Golden State Warriors í framlengdum leik í Toronto en þetta var sjöundi sigur Toronto-liðsins í röð.

Kyle Lowry hélt hann væri búinn að tryggja Toronto sigurinn þegar hann kom liðinu í 119-113 með þriggja stiga körfu 55 sekúndum fyrir leikslok en Kevin Durant kom leiknum í framlengingu með tveimur þristum. Toronto var hinsvegar sterkara á svellinu í framlengingunni og vann hana 12-5.

Kevin Durant skoraði 51 stig í leiknum auk þess að taka 11 fráköst og gefa 6 stoðsendingar. Klay Thompson skoraði 23 stig og Svíinn Jonas Jerebko kom með 20 stig inn af bekknum. Jonas Jerebko skoraði 16 af 20 stigum sínum í fjórða leikhlutanum eða framlengingunni.







Pascal Siakam setti nýtt persónulegt met með 26 stigum, Kyle Lowry var með 10 stig og 12 stoðsendingar, Serge Ibaka skoraði 20 stig og Danny Green bætti við 13 stigum fyrir Raptors-liðið sem hafði fyrir leikinn tapað átta síðustu leikjum sínum á móti Golden State. Toronto hefur unnið 19 af 23 leikjum sínum á tímabilinu sem er langbesti árangurinn í allri deildinni.

Kevin Durant hefur nú í fyrsta sinn á ferlinum skorað yfir 40 stig í þremur leikjum í röð en hann var með 41 stig og 44 stig í leikjunum á undan. Síðastur á undan honum til að afreka slíkt í NBA-deildinni var Russell Westbrook í febrúar-mars 2017.

Stephen Curry missti af ellefta leiknum í röð vegna nárameiðsla en hann á að snúa aftur á laugardaginn á móti Detroit Pistons.

LeBron James átti frábæran leik þegar Los Angeles Lakers liðið endaði tveggja leikja taphrinu með 104-96 heimasigri á Indiana Pacers. James var með 38 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum. Næststigahæsti leikmaður Lakers var Brandon Ingram með 14 stig. Domantas Sabonis var með 20 stig og 15 fráköst fyrir Indiana-liðið.







Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Toronto Raptors - Golden State Warriors    131-128 (119-119)

Los Angeles Lakers - Indiana Pacers 104-96    

Sacramento Kings - Los Angeles Clippers    121-133

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×